Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 15
baða sig í lygnum sjónum. En hvar er erfitt að vakna á íslandi í slíku veðri? Njarðvíkurskriður Frá Njarðvík liggur leiðin um Njarðvíkurskriður til Borgar- fjarðar. Áður en bílvegur var lagður um skriðurnar árið 1950, var þarna talin vera ein hættuleg- asta leið sem menn þurftu að fara á öllu íslandi. Hlíðin er snarbrött og ótrygg undir fæti. Þarna lá lengi vel mjó göngugata. Algengt var að þeir sem óvanir voru þess- ari leið létu binda um sig reipi og leiða sig af tveimur fylgdarmönn- um yfir hættulegasta hlutann. Langt fyrir neðan var ekkert ann- að en grængolandi sjórinn, en þétt á hina höndina risu brattar skrið- urnar. í gegnum aldirnar hafa margar sögusagnir spunnist um Njarð- víkurskriður og bera þær flestar nokkurn keim af hjátrú, sterkri guðstrú eða vissu fyrir því að æðri máttarvöld væru ekki langt und- an. Stundum blandast þetta allt saman eins og gengur. Þótt mörg nöfn séu tengd skriðunum er það einkum tvennt sem lengst mun loða við þessa torsóttu samgönguleið. A'nnars- vegar er það óvætturinn Naddi, hinsvegar Naddakross. Naddi Sagan segir frá manni einum sem uppi var um miðja 16. öld. Hann hét Björn Jónsson og kall- aður Björn skafinn. Foreldrar hans fluttust að vestan til Aust- fjarða. Á Reykjaheiði varð móðir Björns léttari og fæddi hann þar. En þar sem hvergi var vatn að fá, var sveinninn skafinn með hnífi. Því var hann kallaður Björn skaf- inn. Hann ólst upp á Austfjörðum og var afburðamaður að afli og vexti, sem og synir hans allir. Um það leyti sem niðjar Björns voru uppi lagðist af alfaravegur um Njarðvíkurskriður fyrir þá sök, að óvættur einn í mannslíki að ofan en dýrs að neðan lagðist fyrir menn á veginum og veitti mörgum bana þegar dimma tók að nótt. Kom svo að ófært þótti um veginn að fara. Þessi óvættur hélt sig í gili sem liggur Njarðvík- urmegin við skriðurnar og kallað er Naddagil. Á dimmum vetrar- kvöldum heyrðist eins og einhver væri að nadda og glamra á grjót- inu þarna í skriðunum. Fyrir þetta kölluðu menn óvætt þennan Nadda. Það var eitthvert sinn síðla hausts að Jón Bjarnason. sonur Björns skafna, kom seint um kvöld að Snotrunesi í Borgarfirði og ætlaði í Njarðvík. Komið var að dagsetri svo fólk varaði hann við að gefa sig í þá ófæru að leggja svo seint í skriðurnar. En Jón lét fortölur ekki á sig fá og hélt leiðar sinnar. Segir ekki af ferðum Jóns fyrr en hann kemur í gilið þar sem Naddi hélt sig. Þar réðst óvættur- inn á hann og urðu með þeim harðar og illvígar sviptingar. Eftir langan barning varð Naddi að hörfa undan Jóni og segir sagan að þar hafi mestu munað um járnstöng eina mikla sem hinn síðarnefndi hafði meðferðis. Þeg- ar þeir voru komnir á háan mel- jaðar austan til í skriðunum varð leikurinn svo harður að Jón sá tvísýnu á lífi sínu. Gerði hann þá það heit að ef hann sigraði þennan fjanda, skyldi hann reisa minnis- merki um guðs vernd á sér. Þá brá svo við að björtum ljósgeisla sló sem eldingu niður á milli þeirra. Við það ómætti Nadda, hrökk 15 „Gotneska kirkjan“ í Njarðvfk sem segir frá i greininni. VÍKINGUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.