Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Qupperneq 63

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Qupperneq 63
vantar skilning og vilja á þessum málum hjá útgerðinni. Það er mjög skrýtið að menn skuli yfirleitt fást til að vinna þessa vinnu miðað við hve kaupið er lágt og vonir um upphækkanir litlar. — En eru ekki einhver fríðindi samfara þessu? — Fríðindi í formi innkaupa í útlöndum héldu líklega aftur af kaupkröfum manna fram til 1970. Þá var ástandið orðið svo slæmt í launamálum að menn sögðu upp í hrönnum. Ég veit um einn sem fór til Danmerkur þá og fékk helm- ingi hærri laun þar en hann hafði hér. Þetta hefur breyst mjög. Nú er enginn möguleiki á smygli og menn stunda það almennt ekki. Við höfum t.d. ekki sömu skatta- fríðindi og Danir hafa. Vegna þess hve farmenn hafa lítil tækifæri til að njóta þeirrar samneyslu sem skattarnir borga, hafa þeir mun minni skatta. Hér er ákveðinupp- hæð frádráttarbær af þessum sök- um en hún er ekki umtalsverð. Videoin kærkomin Hvernig er með aðstöðu ykkar um borð til tómstundastarfa? — Við fáum senda bókakassa en úrvalið í þeim er mjög tak- markað. Það er verið að reyna að gera þar einhverjum óskilgreind- uni meðalsjómanni til hæfis. Það er furðulegt þegar við eigum bara einn Nóvelshöfund að bækur eftir hann skuli vera í tíunda hverjum kassa en Alister McLean er í hverjum einasta. Það er virkilega gott það sem er að gerast núna, þegar blessuð videoin eru að hefja innreið sína. Ég er mjög ánægður með það en það versta er að í alltof mörgum skipum er engin aðstaða til að horfa á þau. Sums staðar eru messarnir það litlir og stólarnir harðir og óþægilegir að það endist enginn til að horfa á heila mynd. Þetta styttir mönnum siglingarnar mjög mikið. Það væri mjög til bóta ef samvinna næðist við íslenska sjónvarpið um að taka upp frétta- og umræðuþætti og senda um borð í skipin. Það mundi tengja menn ótrúlega mik- ið því sem er að gerast í landinu. Við verðum hálfgerðir útilegu- kallar í allri þjóðfélagsumræðu. Þetta þyrfti ekki að verða mjög kostnaðarsamt en þyrfti skipu- lagningar við, t.d. væri hægt að senda spólur með mönnum sem eru að fljúga út úr fríum, í þau skip sem ekki sigla heim. Án okkar — engin skipafélög Hvað viltu segja að lokum um atvinnuhorfur ungra stýrimanna? — Ég tel einu vonina hjá þeim þá að íslendingar halli sér meir að utanlandssiglingum. Ég vona líka að takist að samræma hagsmuni skipafélaganna og áhafnanna þannig að menn geti valið um hvernig siglingar þeir stunda. Það er t.d. að mörgu leyti þægilegra fyrir eldri menn að stunda utan- landssiglingar. Þeir geta jafnvel tekið konuna með sér en yngri menn sem eiga ung börn þurfa meir á því að halda að koma heim. Þetta þyrfti að vera tekið til greina. Mönnum er ráðstafað algjör- lega af útgerðinni og verða bara að hlíta því sem þeim er sagt. Það getur t.d. allt í einu komið skipun um ferð sem lengir túrinn um mánuð miðað við það sem áætlað var. Þessir aðilar verða að reyna að samræma hagsmuni sína því án skipafélaga fáum við ekki vinnu og án okkar geta þeir ekki rekið sín félög. Þetta voru lokaorð Páls Her- mannssonar sem væntanlega á eftir að standa í ströngu í komandi samningagerð. Vonandi er að fullyrðing hans í lokin verði virt báðum aðilum til hagsbóta í þeim viðræðum sem í hönd fara. E.Þ. VIKINGUR 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.