Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Síða 33
Ein elsta vélsmidja landsins — litið inn til Stefáns Jóhannssonar forstjóra t Vélsmiðja Seyðisfjarðar er elsta starfandi fyrirtækið á Seyðisfirði í dag. Hún var stofnuð árið 1907 og hefur starfað óslitið síðan. Ég vind mér inn á skrifstofuna til Stefáns Jóhannssonar forstjóra Vélsmiðjunnar og bið hann að segja mér ofurlítið frá starfsemi þessa rótgróna fyrirtækis. — Eins og nafnið bendir til var þetta upphaflega stofnað sem vél- smiðja, segir Stefán. Það gerði Stefán Jóhannsson framkvæmdastjóri Vélsmiðju Seyðisfjarðar: „Maður hefur það alltaf á tilfinningunni að verið sé að smíða síðasta bátinn.“ VÍKINGUR faðir minn Jóhann Hallsson. Hún var sett á laggirnar á þeim tíma sem vélar byrjuðu að koma í bát- ana og ætlað að annast viðgerðir og niðursetningu á vélum. Þetta er ein elsta vélsmiðja á landinu. Vél- smiðjan á Þingeyri hefur göngu sína um svipað leyti. í fyrstu smíðuðum við spil og ýmislegt annað auk þess að annast viðgerðir á bátum. Samhliða því rákum við hér slipp á árunum 1940 til 1970, en erum hættir því núna. — Hvernig stóð á því að þið byrjuðuð að smíða báta? — Þegar síldin hvarf á sínum tíma urðum við að mæta yfirvof- andi atvinnuleysi og samdrætti á einhvem hátt. Við vorum búnir að ráða mannskap til að annast við- gerðir fyrir síldveiðiflotann, en svo var hann allan þennan tíma norður í höfum og kom aldrei að landi. Þetta var árið 1967. Við vorum búnir að smíða allt í báta nema aftur- og framenda þannig að okkur datt í hug að láta nú verða af því að smíða stefnin. Hér var búið að lengja báta, setja niður vélar, smíða yfirbyggingar og breyta bátum á ýmsan hátt og eins og ég segi: við áttum ekkert eftir að smíða nema stefnin. Fyrsti báturinn sem við smið- uðum var Valur sem fór til Norð- fjarðar. Hann heitir núna Arnþór ÉA. Hann er um 50 tonn að stærð. Alls erum við búnir að smíða 16 báta og erum að byrja á þeim 17. Það er 150 tonna bátur sem fer til Vopnafjarðar og er jafnframt stærsti báturinn sem við höfum glímt við. Öllu stærri báta getum við ekki smíðað við þær aðstæður sem hér eru í dag. Við ætlum að það taki rúmt ár að smíða þennan bát sem við erum með í takinu. Nýsmíðar og viðgerðaþjónusta — Eru einhverjar horfur á því að þið getið smíðað stærri báta í framtíðinni? — Það fer allt eftir því hver markaðurinn verður. Ef einhver markaður verður fyrir stærri báta verðum við auðvitað tilneyddir til að stækka okkar aðstöðu, það segir sig sjálft. Núna vinna á milli 20 og 25 manns við fyrirtækið. Hér hafa starfað um 30 manns þegar flest hefur verið. Síðasta bátinn sem við smíðuðum afhentum við í apríl og höfum verið verkefna- lausir fram að þessu. Það er mjög bagalegt. Þegar við afhentum tvo síðustu bátana urðum við verk- efnalausir um nokkurn tíma. Maður hefur það alltaf á tilfinn- ingunni að verið sé að smíða síð- asta bátinn. Það þýðir auðvitað að ekki er hægt að búa í haginn á neinn hátt. Þessu fylgir mikið óöryggi. Mér sýnist ástandið framundan nokkuð svipað því sem verið hefur á undanförnum tveimur til þrem- ur árum. Þannig hefur það verið 33 Ad austan

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.