Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1981, Blaðsíða 34
Fylkir, sem nú er Lingey SF 61. Fyrsti „stóri báturinn" sem Vélsmiðja Seyðisfjarðar
smíðaði árið 1972. Fylkir var nýsmíði nr. 5 hjá vélsmiðjunni. Hann er 92 brl.
ÖRUGG HANDTÖK MEÐ
SJOKLÆÐAGERÐIN HF
Skúlagötu 51 - Reykjavik - Sími 1-15-20
VINYL G
SEXTIU OG SEX
NORÐUR
VINYL GLÓFINN
• MEÐ HRJÚFU YFIRBORÐI
• ÖRUGG HANDFESTA
FÖÐRAÐIR MEÐ 100% ÝFÐU
BÖMULLAREFNI
ROTVARÐIR (SANITIZED)
STERKIR EN MJÚKIR
ÍSLENSK FRAMLEHDSLA
að enginn samningur hefur fengist
fyrr en báturinn er búinn sem
maður hefur verið með. Með
þessu móti myndast alltaf gap þar
sem verkefni vantar.
Ég held að öllum sé ljóst, að við
verðum að endurnýja bátaflot-
ann. Það verður að gerast hægt,
þannig að það verði ekki allt of
stórt stökk. Vissar bátategundir
verða að fá að þróast svo að allur
flotinn úreldist ekki á sama tíma
og nú á sér stað.
— Hvernig hefur gengið að fá.
menn til vinnu?
— Það gengur illa. Hér vinna
nær eingöngu heimamenn, en það
er fjöldinn allur af strákum sem
lært hafa hjá okkur en eru bara
hásetar á togurum. Þar hafa þeir
það miklu betra, fá bæði meira frí
og meira kaup. Mannskapurinn er
mesta áhyggjuefnið á eftir verk-
efnunum.
Við erum alltaf með viðgerðar-
þjónustu þótt verið sé að smíða
báta. En spil og þess háttar erum
við alveg hættir að smíða, mestan
part vegna þess að við höfum ekki
mannskap í það.
Þess má að lokum geta að Vél-
smiðja Seyðisfjarðar og Vélsmiðj-
an Stál á Seyðisfirði hafa tekið
upp með sér vissa samvinnu við
nýsmíðarnar.
G.A.
Talaðu þegar þú ert reiður og
þú munt halda þá beztu ræðu, sem
þú munt nokkumtíma sjá eftir .. .
★
Listamenn geta litað himininn
rauðan, vegna þess að þeir vita að
hann er blár — við hinir verðum
að mála hlutina eins og þeir eru
annars halda allir að við séum
brjálaðir. . .
34
VÍKINGUR