Náttúrufræðingurinn - 1932, Qupperneq 22
1(5 f\TÁTTÍJRUFR.
landf, má segja, að þessi vísir sé eins og barn í reifum, sem eigi
verði sagt um, að hverju gagni geti orðið. Framtíðarmöguleikar
þessarar iðnar hér á landi virðast vera allmiklir. En áhugi Guð-
mundar til að hrynda þessum framkvæmdum áfram er ekki ein-
hlýtur. Árangurinn hlýtur að fara mjög eftir því, hvort vér land-
ar hans höfum fullan skilning á þessu starfi hans og gagnsemi
þessarar iðnar og viljum efla hann til framkvæmdanna.
Eg hefi ritað nokkuð ítarlega um þetta efni af því eg tel það
mikilsvert, að vér reynum að hagnýta þau nýtilegu jarðefni, sem
í landinu eru, til þess að vinna úr þeim einhver verðmæti handa
sjálfum okkur eða handa öðrum þjóðum. Hefi eg áður bent á ým-
islegt af því tæi í þessu tímariti. Menn hafa áður lagt nokkra vinnu
í það að leita eítir fágætum og dýrum jarðefnum í landi voru, og
er það þarft verk. En miklu meira virði er það ef mönnum tekst
gera verðmæt þau efni, sem eru auðfengin og vér höfum mikla
gnægð af. Einmitt í þá átt beinast tilraunirnar, sem nú hafa ver-
ið gerðar með íslenzka leirinn.
Erlendis eru menn þegar byrjaðir á því að nota raforku til
leirbrennslu. Gæti svo farið að leirbrennsla hér heima yrði að ein-
hverju leyti verkefni handa vatnsorkunni okkar, og yrði á þann
hátt til að styðja að fossavirkjun hér á landi (sbr. Náttúrufræð-
ingurinn I, bls. 44).
Til þess að sýna, að leiriðnaður geti verið nokkurs virði í
búskap einnar þjóðar, set eg hér yfirlit yfir verðmæti leiriðnað-
ar í Danmörku árið 1926 (tekið eftir: Danmarks Geologi, Kbh.
1928). —
Postulínsvörur........................... kr. 7.754.000
„Fajance“.................................. — 816.000
Leirvörur af betri tegund (frá Bornhólmi) . . — 700.000
Leirvörur af meðalgæðum.................... — 1.300.000
Tígulsteinn, leirpípur, þakhellur af leir o. fl. — 24.000.000
Móleir..................................... — 550.000
Samtals kr. 35.120.000
Samkvæmt þessu hefir leiriðnaður þar gefið af sér rúmar 35
miljónir króna á einu ári. Á sama tíma hafa Danir framleitt
sement fyrir ca. 21(4 miljón króna. Unnu þá 287 verksmiðjur
og vinnustaðir að leiriðnaði, þar á meðal 262 að tígulsteina-, þak-