Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 25

Náttúrufræðingurinn - 1932, Blaðsíða 25
NÁÍTÚKUim. 19 fjall rís upp frá túninu á Skriðu með mörgum hjöllum og hamra- beltum. Tók krummi sér bólfestu upp í hamrabeltunum. I fyrstu, á meðan vængjatakið var stirt og ef til vill ekki sársaukalaust, þá gekk hann upp á fjallið, en lét vængina bera sig niður til bæj- arins þegar hann átti erindi. Seinna fór hann að fljúga báðar leiðir. Eftir að krummi fór að taka sér bólfestu í fjallinu, var það vani hans, að koma minnst tvisvar á dag og þiggja beina; settist hann þá á húsaþökin og krúnkaði áfergjulega, svo sem hann vildi vekja athygli á sér. Þegar leið að miðju hausti fór sá burt af heimilinu, sem mest hafði gengið krumma fyrir beina. Fór krummi eftir það að strjála komur sínar heim að bæ, enda átti hann gott til matfanga eftir að hann var orðinn fleygur, og nótt tók að dimma. Flaug hann þá. með símanum og tíndi upp smáfugla þá sem fengið höfðu aldurtila af árekstri á vítisvél þá, sem þeim er búin með símþráð- unum. Hafði hann jafnan einn hátt á máltíðum sínum, þeim er hann fékk af símanum, sleit af höí'uðið og rendi því niður í heilu lagi, j>annig að hnakkinn gekk á undan og nefið á eftir. Seinna um haustið hitti bóndinn á Skriðu þenna gest sinn út við Lagarfljót, þar sem lagt var upp vörum úr „Orminum“ þeim, er um fljótið siglir. Voru þar, m. a. slengistór dilkahöfuð væn, og blóðbelgir. Mun krummi hai'a talið sér þar heimila máltíð; var hann búinn að kroppa augun úr nokkrum diikahöfðum og stinga gat á blóðbelg og tæma hann. Mun hann hafa talið sér óskylt að hafa þurra máltíð, þegar svo mikils mjaðar, og góðs, var kostur. Hitt vita menn ekki, hvort hann hefir haft svo góðar nytjar mjað- arins, sem ætlað var. Þetta veit eg síðast af krumma að segja. I janúar 1932. Halldór Halldórsson. Fótalausa kríu, fullþroskaða, fann eg- vorið lí) 18 dauða á völlum við t.jörn eina, þar sein Tóftabrunnar heita í Grindavík. Er það skammt f'rá sjó. Ivrían er í Náttúrugripusafninu. Hefir Bjarni Sæmundsson skoðað hana, og' segir iiann, að ekki verði annað séð, en að hún hafi fæðst fótalaus. príhyrndan hrútshaus fókk eg liaustið 1920 vestur í Breiðadal í Ön- undarfirði og' sendi eg Náttúrugripasafninu hann. Miðhornið er næstum því fram úr miðju enninu, að eins örlítið til hægri, og' veit það upp og fram. Þegar hausinn var fleginn, eftir að safnið hafði fengið lmnn, varð vart örlítillar ójöfnu þar sem fjórða hornið lieíði átt að vera. Guðm, K. Ólafsson, úr Gi'indavík. 2*

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.