Náttúrufræðingurinn - 1932, Qupperneq 31
N'ÁTTfriíUFR.
25
hann skírði Simmthropus Pekinensis, ]>að |>ýðir hinn kínverski
frummaður frá Peking. — Mörgum kann nú að |)ykja undarlegt,
að hægt skuli vera að ráða um útlit veru af fáeinum tönnum, er
legið hafa í jörðu grafnar nokkur hundruð ]>úsundir ára. En slíkt
er vizka og ]>ekking vísindamanna nútímans, enda kom lýsing
Davidsons vel heim við síðari fundi.------
Enn var haldið áfram rannsóknunum, og í desember 1929
fundu menn loksins leifar, er vel launuðu alla fyrirhöfnina. Var
]>að brot af neðri kjálka og höfuðskel, sem talin er vera af ungl-
ingi, 12—14 ára.
Síðan (í júní 1930) hefir fundizt önnur höfuðskel, minna
skemmd, og enn má búast við merkum fundum frá ]>essum stað.
Það sem fyrst vekur athygli, ]>egar höfuðskeljar ]>essar eru
athugaðar, er ]iað, hversu mjög ]>ær lík.jast höfuðskel hins fræga
„apamanns frá Java".1 * Þær eru raunar nokkru stærri, og benda
á, að Peking-maðurinn hefir staðið á hærra jiróunarstigi. (Heila-
bú Java-mannsins er álitið ca. 900 cmn, Peking-mannsins ca. 1000
cm.3. Til samanburðar má geta ]>ess, að heilabú nútíma Evrópu-
manns er ca. 1450 cm.:i). En að öðru svipar ]>essum höfuðskeljum
svo m.jög saman. að sumir mannfræðingar vilja telja ]>ær til sömu
tegundar. Er þetta því ný og torhrakin sönnun fyrir tilveru apa-
mannsins, og ]>ví merkilegri sem hægt er að ákveða aldur Pek-
ing-mannsins miklu nánar. Hafa beinin fundizt í kalklögum, sem
eru frá byrjun Kvartertímabilsins, eða upphafi hins rnikla fimbul-
vetrar, sem kallast jökultiminn. Hafa þau flest fundizt í helli
nokkrum og í þeim helli hafa einnig fundizt leifar um 60 spen-
dýrategunda. Óhugsandi er, að allar þessar tegundir hafi hafzt við
í sama hellinum. Verið getur, að þarna hafi verið bæli rándýra, en
líklegast mun ]>ó, að ]>etta hafi verið dvalarstaður Pekingmanns-
ins sjálfs.--------
Lengi vel fundust engar leifar vopna eður verkfæra hiá bein-
um Peking-mannsins, en á fundi í jarðfræðifélaginu í Kína, 3.
1 Arið 1891 fann hollenzkur læknir <á Java, 1) u b o i s að nafni,
liöfuðskel, lærlegg og tvo jaxla af útdauðri veru. Af lærleggnum má ráða,
að vera sú hefir gengið upprétt, og höfuðskelin sýnir, að heilabúið hefir
verið nokkru strorra en á mannöpum. Að öðru levti lvefir veru þessari svipnð
inest til apa. Dubois taldi hana ]>ví millilið niitti manna og apa, og gaf henni
nafnið Pithecanthropus erectus, sem þýðir hinn u.pprétti apamaður. Hefir
m.jö<r verið deilt um fund þennan. Meðal annars telja sumir fræðimenn, að
herleofrurinn sé af manni en höfuðskelin af apa, og eigi því ekki saman. E>1
fundur Sinanthropus tekur af tvímæli uin tilveru Javajnannsins,