Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 4
56
NÁTT Ú R UFRÆÐ I N G U RI N N
Rétt austan við malareiðið, sem tengir Geldinganes við land, er
dálítill höfði úr lrergi, sem virðist vera jökulberg. Höfðinn er raun-
ar endinn á lagi, sem liggur milli blágrýtislaganna og rekja má
vestur eftir, þar sem það sést öðru hverju vestur undir Knútskot.
Nokkrum metrum ofan við aðalveginn að Áburðarverksmiðju rík-
isins í Gufunesi kemur lagið fram á tveim stöðum. í því eru stein-
ar af ýmsum stærðum, frá smávölum upp í steina um 50—75 cm í
þvermál. Þeir eru ýmist köntóttir eða meira eða minna rúllaðir.
ffergið er brúnleitt til grátt að lit. Lagið er nokkuð misþykkt, en er
að norðanverðu a. m. k. 4—6 m. Steinarnir í þessu bergi eru úr
mismunandi blágrýti, sem er aðeins að nokkru leyti holufyllt.
Tengiefnið er fínn sandur, mósandur og leir. LFm þessi lög er
getið í greinarkorni, sem út kom í Geografiska Annaler í Stokk-
hólmi 1955, en ekkert er þar fullyrt um uppruna bergsins og út-
breiðsla þess ekki rakin. Síðari athuganir hafa leitt í ljós, að þess-
um berglögum má fylgja með ströndinni austur og norður eftir.
Undirlag þeirra er sýnilegt á meira en einum stað, en svo lítið sést
af því að lítið er á að græða. Norðvestur af Korpúlfsstöðum er jök-
ulbergið sem millilag, 3—4 m þykkt, milli blágrýtislaga. Fágaðir
steinar eru þar víða í því og jafnvel nokkur fáguð björg. Hólmar
tveir norður af Korpúlfsstöðum eru eingöngu úr þessu bergi, sem
þar ber óvenju ljós einkenni jökulbergs. Fágaðir og rákaðir stein-
ar eru í því. Stærri hólminn er á kortinu ranglega sýndur sem
tertiert blágrýti, en minni hólminn er svo lítill að hann er ekki
sýndur á því. Þurrt er út í þessa liólma um fjöru. Við Blikastaða-
kró kemur sama berg enn fram í farvegi Korpúlfsstaðaár. Þar er
það um 4 m þykkt þar sem það er þykkast. Neðsti fossinn í ánni
fellur fram af þessu lagi. Ekki er mér kunnugt um að þessi berg-
lög séu sýnileg víðar á því svæði, sem kortið nær yfir.
Á meðfylgjandi korti, sem er mjög smækkuð mynd af áður
nefndu jarðfræðikorti, er þetta lag merkt T 1 (1. mynd). Sennilega
er berg þetta frá því á tertier, og augljóst er, að það er verulega
eldra en höggun sú, er kom berglögunum hér til að hallast um allt
að 12° móti suðaustri.
1. mynd. Jarðfraeðikort af nágrenni Reykjavíkur. Jökulbergið er merkt T 1,
T 2 og T 3 (Sbr. textann). Geological map of the neigbourhoocl of Reykjavík.
The principal tillite-localities are indicated on the map as T 1, T 2 and T 3
(See text).