Náttúrufræðingurinn - 1960, Qupperneq 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
59
2. myncl. Sandfell séð norðan frá. Jökulbergið liggur eins og kápa á fjallinu.
The mountain Sandjell from N. Tillite 3 (T 3) is seen as a cover on top of tlie
mountain, beneath it is pillow lava. Ljósm.:
Photo: J°n JÓnSSOn'
misgengi, og í Hafrahlíð kemur jökulbergið fram neðst í hömrun-
um að suðvestan. Fremur lítið sést af því þar, og verður það þynnra
eftir því sem austar dregur og austast er það aðeins orðið að um
20 cm þykku leirsteinslagi. Á stöku stað er lagið jafnvel enn þá
þynnra eða aðeins nokkrir centimetrar. Vestast í Hafrahlíð er mis-
gengi um h. u. b. 20 m, og nokkru austar er 20—25 m breitt belti,
þar sem bergið er mjög brotið. Misgengi er þar samtals um 12 m.
Aðeins á einum stað hef ég þarna séð, að blágrýtið, sem jökulbergið
livílir á, er fágað og rákað. Er athyglisvert, að það er að útliti til
mjög unglegt og að liolufyllingar sjást varla í því. Ekki virðist
ástæða til að draga í efa, að hér sé um jökulberg að ræða og það sé
áframhald laganna í Úlfarsfelli. í klettunum sunnan við Borgar-
dal sést jökulbergið líka, og er það brotið og misgengið einnig þar.
Um aldur þessara jökulbergslaga, er það eitt að segja, að þau eru
eldri en sti höggun berglaganna, sem áður er getið.
Ekki getur að svo stöddu talizt loku fyrir það skotið, að þessi