Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 10
62
NÁTTÚRU FRÆÐIN G U RI N N
j 'in!i!iiii|íiiijit^iiii|!i!i;iiii|tfii|iiii|iiii|iiii|iiii]iiii|i{piii|iifi|iiiiiiiimii!j!iii|iiri|íiii|.
L M. 17 IR i<t ?'l 2 2 2 3 24 U^R 26 _ 27 2's' 25
5. mynd. Lagskipt setberg neðst úr jökulbergslaginu í Sandfelli. Varved sedi-
ment from the lovest part of the tillite series on Sandfell (cf. fig. 4).
Ljúsm.: ján jónsson
Photo: J J
Austast á svæðinu kemur þetta jökulberg fram norðan og vestan
við rætur Vífilsfells, örskammt sunnan við þjóðveginn. Það liggur
svo eins og kápa á öllum vesturhluta Sandfells (2. mynd), og norðan
í fjallinu má sjá þverskurð af þessari bergmyndun, sem þar hvílir
á bólstrabergi. Neðst er bergið lagskipt og minnir á harðnaðan
hvarfleir; efnið er þó að jafnaði grófara en leir. Við athugun í smá-
sjá verða hvörfin greinileg. Lögin eru mismunandi þykk og ekki
alltaf regluleg. Víða eru þau iögð í smáfellingar og einnig víða
brotin (5. mynd). Er ofar dregur verður efnið allt grófara, og meira
ber á steinum í því. Eru þeir hnefastórir og stærri. Sumir þeirra
eru með mjög greinilegum ísrákum (3. mynd), eins og sjá má t. d.
uppi á fjallinu norðan til, skammt vestan við vörðubrot, sem þar
er og sést af þjóðveginum. Eins og áður er getið, þekur jökulbergið
allan vesturliluta fjallsins. Það hvilir á bólstrabergi, og eru mót
þessara bergmyndana mjög ljós og skörp sums staðar norðan í fjall-
inu (4. mynd).
Sprungur liggja á nokkrum stöðum þvert yfir Sandfell, t. d. í