Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 20

Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 20
72 NÁTTÚ R U FRÆÐIN GURI N N Snoðiræhyrna (C. glabratum). A. Algerlega liárlaus, blöðin iivassydd. var. glabratum. Al. Blöðin hærð við grunninn eða á röndunum með fáeinum „músareyrahárum". var. piliferum. Fjallafræhyrna (C. arcticum). A. Blöðin hárlaus eða lítillega hærð á efra borði, randhærð með 3-fáfruma hárum, gildum við grunninn. Engin „músareyra- liár“. var. arcticum. Al. Með „músareyrahárum“. B. Fáein „músareyrahár" á blöðum og stönglum. var. alpino- pilosum. Bl. Blöðin mikið liærð af ullhárum, sem venjulega eru gróf- gerðari en ,,músareyrahárin“, oft randhærð, randhárin gildust við grunninn. Plantan lágvaxin, þýfin, gulgræn. Hárin hvít eða ljósleit. Bikarfliparnir snubbóttir með breiðum himnufaldi. Venjulegast aðeins eitt stilklangt blóm. var. vestitum. Bastarðar þeir, sem Hultén hefur greint frá íslandi eru: C. al- pinum x arcticum, C. alpinum x glabratum og C. arcticum x gla- bratum. Eftir að ég hafði fengið oftnefnda ritgerð Hulténs í hendur, tók ég öll söfn mín af umræddum tegundum til athugunar, en um mörg undanfarin ár hafði ég safnað þeim fræhyrnuplöntum, sem mér við fljóta yfirsýn sýndust eitthvað frábrugðnar hinu venju- lega músareyra C. alpinum. Alls hafði ég sýnishorn frá 51 stað, auk nokkurra, sem ég hef enn eigi treyst mér til að nafngreina með vissu. Af þeim voru 15 C. alpinum ssp. lanatum, enda er sú teg- und algeng hvar sem er á landinu, sem fyrr segir. Söfn frá 5 stöð- um líkjast allverulega afbrigðinu var. alpinum, en ekki verður neitt fullyrt um þau eintök að svo stöddu. Útbreiðsla hinna tegundanna reyndist sem hér segir: C. glabratum var. glabratum. Húsafell í Borgarfirði, V, Tungudalur í Bol- ungarvík, Melgraseyri NV, Blikalón á Melrakkasléttu NA, Grunnidalur í Breiðdal A. var. piliferum. Hítardalur V, Geiradalur, Gautsdalur, Staður á Reykjanesi, Trostansfjörður, Bolungarvík á tveim stöðum.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.