Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 27
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
79
minna kringlóttar skánir eða flögur, sem eru eitt eða fá frumulög á
þykkt, en upp úr þeim vaxa stuttir þræðir (1. mynd). Báðir ættlið-
irnir eins útlits. Venjulega fastvaxnir á steinum eða öðrum föstum
hlutum, oft ásætur á öðrum þörungum.
ECTOCARPACEAE: Ectocarpus (7), Miltrosyphar (1), Phaeostroma (1),
Pylaiella (1), Streblonema (2).
RALFSIACEAE: Lithoderma (1), Petroderma (1), Ralfsia (4).
MYRIONEMACEAE: Myrionema (5), Ascocyclus (1).
B r u n s 1 í . Ectocarpus confervoides.
Plönturnar í þéttum dúskum eða breiðum, allt að 10 cm háar.
Þræðimir grannir og mjög greinóttir, þeir breiðustu 40—60 p,
hliðarþræðirnir grennri og
enda oft í hári. Gróhirzlur á
víð og dreif á greinunum, oft
margar í röð sama megin, þær
einhólfa, egglaga og sitjandi,
þær marghólfa lengri, mjög
misstórar, oftast lensulaga eða
staflaga, sitjandi eða á stilk-
um. Á steinum og stórvöxnum
þörungum.
Finnst meðfram allri strönd-
inni.
2. mynd. Ectocarpus confervoides.
1 efsti hluti af plöntu með marg-
hólfa gróhirzlum (x 60). 2 hluti af
þráðum með einhólfa gróhirzlum
(x 60). 3 einstök fruma með litbera
(x 240) (Taylor).