Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 31
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
83
Skollagras. Chordaria flagelliformis.
Plönturnar 20—60 cm háar, einstakar eða margar saman £ast-
vaxnar með skjaldlaga rótarflögu. Þræðirnir, 0,3—1 mm breiðir. Út
6. mynd. Chordaria flagelliformis, a langskurður a£ greinarenda,
löngu Irumurnar endi miðstrengsins, út Irá honum írumuþræðir
barkarlagsins. b þverskurður úr grein með einhólfa gróhirzlum.
(280 x) (Kylin).
frá einum aðalþræði vaxa margir mjög langir hliðarþræðir, sem
greinast ekki, eða mjög sjaldan. Frumuþræðirnir í barkarlaginu 60—
100 (x á lengd, neðstu frumumar lengri en þær eru breiðar, yztu
frumurnar hnöttóttar, 10—16 jx i þvermál. Þalið sterkt og seigt,
dökkbrúnt, en verður svart við þurrkun. Slímugt. Vex í þang-
beltinu.
Algengt alls staðar meðfram ströndinni.
4. œttbálkur. Desmarestiales.
Kynliðurinn ntjög smávaxnir þræðir. Gróliðurinn stórvaxnar
plöntur, stundum allt að 5 metrar á lengd, m jög greinóttar. Aðallegg-
irnir oft margir cm á breidd, sívalir eða flatir með miðtaug, gerðir
af miðstreng úr stórum löngum frumum og barkarlagi úr litlum
köntóttum frumum. I barkarlaginu sumstaðar einhólfa gróhirzlur.
Engar marghólfa gróhirzlur. Kynjuð æxlun fer fram við eggfrjóvgun
hjá Desmarestia.
DESMARESTIACEAE: Desmarestia (3).