Náttúrufræðingurinn - 1960, Síða 33
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
85
lög, eru innri ixumurnar stórar og litlausar, en utanum þær er bark-
arlag úr smávaxnari frumum með blaðgrænu. Vöxturinn fer fram
í greinarendunum. Plönturnar með einhólfa gróhirzlum eða marg-
hólfa gróhirzlum, sumar tegundir með hvorurn tveggja. Gróhirzl-
urnar ýmist einstakar eða margar saman í gróbeðum (sori).
PUNCTARIACEAE: Omphalophyllum (1), Punctaria (1), Lithosiphon (1),
Isthmoplea (1), Stichyosiphon (1), Phaeostroma (1), Scytosiphon (1), Phyllitis (2).
DICTYOSIPHONACEAE: Coilodesme (1), Dictyosiphon (6).
Fjöruslóg. Scytosiphon Lomentana.
Þalið pípulaga, 10—40 cm langir og 1—5 mm breiðir þræðir,
mjókkandi í báða enda. Þræð-
irnir innskornir með vissum
millibilum, svo að þalið verð-
ur útlits svipað innyflum úr
fiski (slóg). Pípuveggurinn úr
2 lögum, innra lagið úr stórum
löngum frumum, ytra lagið,
barkarlagið, úr litlum köntótt-
um frumum. Þalið olívu-
brúnt. Gróhirzlumar marg-
hólfa og milli þeirra stór-
ar, kylfulaga hárfrumur. Á
steinum og föstum hlutum á
grunnu vatni.
Meðfram allri ströndinni.
8. mynd. Scytosiphon Lome?itaria.
A lieil planta, ca. hálf stærð. B
hluti af yfirborði þalsins með marg-
hólfa gróhirzlum og stórum kylfu-
laga hárfrumum (350 x). C þver-
skurður af þalinu (350 x). (Newton).