Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 34
86
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Fjöruskegg. Dictyosiphon foeniculaceus.
Myndar 10—60 cm liáa óreglulega dúska. Þalið þráðlaga, allt að
0.5 mm breitt, holt að neðan,
mjókkandi uppeftir, mjög grein-
ótt. Aðalþræðirnir langir, út frá
þeim stakstæðar eða gagnstæðar
hliðargreinar eiirnig nokkuð
langar, sem aftur hera grannar,
stuttar greinar, settar litlausum
hárum. Þalið gulbrúnt, leður-
kennt. Einhólfa gróhirzlur nið-
ur á milli þekjufrumanna. Á
grunnu vatni, oft á öðrum þör-
ungum.
Við A., N., NV. og SV.-strönd-
ina.
<J. mynd. Dictyosiphon foeniculaceus,
a hluti a£ plöntunni, ca. i/5 a£ nátt-
úrlegri stærð. b þverskurður a£ grönn-
um þræði (160 x). c þverskurður, lang-
skurður og yfirborð á gildari þræði
með einhólfa gróhirzlum (160 x).
(Kútzing).
6. œttbálkur. Laminariales.
Kynliðurinn oftast aðeins fáeinar frumur, sérbýlisplöntur með
eggfrjóvgun. Gróliðurinn mjög stórar plöntur. Þalið greinist í rót,
legg og blöðku, nema hjá Chorda, þar er þalið einfaldur langur
þráður. Sumstaðar er rótin greinótt og grípur um fótfestuna, hjá