Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 44
96
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
um. Oftast einstaka plöntur hér og þar á klettunum, en stundum
myndar hún þó smá gróðurbletti.
Við SV og S-ströndina.
Greiningarlykill.
Hér eru teknar með flestallar þær ættkvíslir brúnþörunga, sem
taldar eru í riti Helga Jónssonar: The Marine Algal Vegetation of
Iceland, og getið hefur verið hér að framan. Lykillinn er gerður að-
allega eftir E. Rostrup: Den danske Flora. Blomsterlöse Planter, og
B. Ursing: Svenska Váxter. Krytogamer. Báðar þessar bækur má
nota við greiningu fjölmargra íslenzkra tegunda af brúnþörungum,
en í lykli þeim, sem hér birtist, er látið staðar numið við ættkvísl-
imar.
Phaeophycea
1. Æxlunarfærin (frjóhirzlur og egghirzlur) í holum (konceptakel) undir yfir-
borði halsins. Stórar Ieðurkenndar plöntur .......... Fucaceae (bls. 92)
1. Æxlunarfærin (gróhirzlur o. fl.) utaná, í eða undir yfirborði þalsins, aldrei
í holum. Margvíslega lagaðar plöntur .............................. 2
2. Stórir leðurkenndir þörungar með greiningu í blað og legg .........
Laminariaceae (bls. 87)
2. Þalið greinist ekki í blað og legg ............................ 3
3. Þalið einfaldir greinóttir frumuþræðir ........................... 4
3. Þalið samsíða frumuþræðir eða samfelldur frumuvefur .............. 8
4. Uppréttir þræðir, sem greinast aðeins neðst ................... 5
4. Uppréttir þræðir, sem greinast einnig ofantil ................. 6
5. Einbólfa gróhirzlur neðst á milli þráðanna, en engar í þráðunum sjálfum ....
Elachista
5. Marghólfa gróhirzlur í sjálfum þráðunum, og einhólfa gróhirzlur á milli
þeirra........................................................ Leptonema
6. Gróhirzlur í sjálfum þráðunum, oft margar i röð .......... Pylaiella
6. Gróhirzlurnar sitja utan á þráðunum, stundum á stilkum ......... 7
7. Örsmáar plöntur. Þræðir í þekjuvef stærri þörunga ......... Streblonema
7. Stærri plöntur, í dúskum eða breiðum ........................ Ectocarpus
8. Þalið hlaupkenndar holar kúlur ........................... Leathesia
8. Þalið skófir eða flekkir ......................................... 9
8. Þalið upprétt..................................................... 11
9. Þalið litlir flekkir úr einu flötu frumulagi og uppréttum stuttum þráðum.
Á stærri þörungum ............................................ Myrionema
9. Þalið dökkbrúnar skófir. Á steinum ................................. 10