Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 153 100 m neðar en í dag, svo að sá hluti landgrunnsins nyrðra, sem ofar liggur en 100 m dýptarlína hafsins, liefur verið þurrt land og íslaust að mestu. Á íslausum svæðum í fjöllum og á landgrunninu nyrðra hjarði hluti núverandi flóru af fimbulvetur ísaldanna og breiddist þaðan út á hlýöldum og nútíma. Lítið er kunnugt um það, hve langan tíma framrás og bráðnun ísaldarjöklanna tók, en þó skal hér reynt að gera nokkra grein fyr- ir bráðnunarsögu meginjökuls síðustu ísaldar suðvestan lands. Þeg- ar jökullinn var hvað stærstur, mun hann hafa hulið allt land urn- hverfis Faxaflóa nema hæstu fjöll, svo sem Esju og Skarðsheiði. Jökullinn mun hafa náð allt út undir brún landgrunnsins (Jökul- rispur eru t. d. kunnar frá Garðskaga.) og kelft þar. Jöklar kelfa, þegar þeir koma á vatnsdýpi, sem nemur 9/i0 þykktar þeirra. Jökulskjöldurinn tók að rnesta kuldakasti síðustu ísaldar loknu að bráðna. Nokkrum árþúsundum eftir að hann var stærstur, skaut Suðurkjálkafjallgarðinum og Suðumesjum öllum upp úr jökulhjarninu. Rétt um það leyti, er Suðurkjálkinn var orðinn íslaus, kólnaði nokkuð í veðri aftur, svo að jökullinn skreið fram að nýju. Ýttust þá upp jökulgarðar á Álftanesi, í mynni Hvalfjarð- ar, í Melasveit (Skon'holtsmelar) vestan Leirár og líklega víðar. Síðan framskrið þetta, sem nefna mætti AlftanesstigiÖ, átti sér stað, mun vart vera skemmri tími liðinn en 20000 ár. Jökullinn hörfaði brátt fyrir hlýindum frá jökulgörðum þessum. Á þessu bráðnunarskeiði (interstadial) hvarf hann upp á hálend- isbrúnina. Enn breyttist loftslag til hins verra, og jökullinn gekk fram. Við þessa framrás mynduðust miklir jökulgarðar, sem rekja má um þvert Suðurlandsundirlendi frá Keldum á Rangárvöllum út í Biskupstungur. Framrás þessi hefur verið nefnd Búðastigið. (Guð- mundur Kjartansson 1943). Norðan lands eru jökulgarðar áþekkir að aldri, og má rekja þá frá Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu, norðan Mývatns, um Möðrudal og austur að Hauksstöðum á Jökul- dal (Hólkotsstig). (Sigurður Þórarinsson 1951). Svo sem áður sagði, var mikið vatn bundið í jöklurn á ísöld- um. Jöklar huldu á síðustu ísöld 14 og hinni næstsíðustu líklega 1/3 landjarðarinnar, miðað við 1 /3 0 í dag. Við bráðnun jöklanna hækkaði mjög ört í höfunum, svo ört, að löndin, sem jökullinn ltafði legið yfir og þrýstst höfðu niður undan jökulfarginu, náðu eigi að rísa nógu skjótt, og flæddi því sjór víða yfir láglendi, um

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.