Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 23
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
171
9. mynd. Eystri gossprungan á Hellisheiði norðan þjóðvegar. Þar konni upp
Þurárhraun og Orustuhólshraun árið 1000. A bendir á vestri og eldri gossprung-
una, sem liggur yfir Stóra-Skarðsmýrarfjall til Innstadals, en B á misgengi í
austanverðu fjallinu. — Die Kraterreihe auf Hellisheiði, die im Jahre 1000
tdtig war. — Ljósm. Þ. E.
Hraunsvigður eru víða í apalhraunum, t. d. í Landbrotshrauni
(Jón Jónsson 1954).
Þess var áður getið, að Kristnitökuhraun lægi vestan Hveradala
inn undir jaðar Brunans og væri því eldra en liann. Orðið Bruni
virðist hér sunnan lands einkum vera notað um hraun, runnin,
eftir að land byggðist. Menn hafa séð hraunin brenna. Dæmi um
þetta eru Inn- og Frambruni í Eldborgarhrauni (Kristnitökuhrauni).
Yngsta hraun sunnan Hafnarfjarðar heitir og Bruni. Er hraun Jrað
komið frá Óbrynnishólum undir Undirhlíðum. Þess er getið í
Kjalnesingasögu sem Nýjahrauns. Samkvæmt rannsókn Guðmund-
ar Kjartanssonar (1952) er Bruni þessi runninn á landnámsöld eða
litlu síðar. í Þingeyjarsýslu er nafnið Bruni að vísu notað um
úfin apalhraun, Grænavatnsbruni og Út- og Innbruni í Ódáða-
hrauni, sem runnin eru, áður en land byggðist. Nafn hraunanna