Náttúrufræðingurinn - 1961, Qupperneq 25
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
173
10. mynd. Kort af helztu brotalínuin á Hellisheiðarsvæðinu.
Skýringar: 1 misgengi (örin sýnir sigið), 2 brotalína (án misgengis), 3 líklegt
misgengi, 4 líkleg brotalína, 5 gjár, 6 hverir.
Lönguhlíð. Sanddalir eru reyndar sigdalur, stallasig bæði austan
og vestan dalsins. Lengsta brotalínan mun vera sú, sem gengur úr
Sanddölum norður um Stóra-Sandfell, Lakadal(gjá), I.akahnúka,
Smiðjulaut (elztu Hellisheiðarhraun sigin urn 5 m), Stóra-Skarðs-
mýrarf jall (vestri barmur siginn um 15 m) og Innstadal. Þar er
misgengi í Innstadalshrauni, vestri barrnur siginn um 5 m. Greini-
leg misgengi eru einnig í Húsmúla, Sleggjubeinsdal, Hellisskarði,
Vatnaöldum ofan Sandskeiðs og víðar. Miklar gjár eru norðan Sel-
vogsheiðar, og ná þær allt til Litla-Meitils. Flestar eru brotalínur
þessar ungar, því að víða hafa hraun, runnin á nútíma, haggazt,
svo sem áður sagði. Brúnir Hjallafjalls og Efrafjalls eru að öllum