Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 36

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 36
184 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN sammála. Stakk hann jafn- framt upp á því, að kuð- ungurinn yrði talinn und- irtegund (subspecies) af beitukónginum; gaf hann honum nafnið superangu- lare, án þess þó að frum- lýsa honum. Ætti þá kuð- ungurinn eftir nýjustu nafngiftareglum að lieita: Buccinum undatum super- angulare. En eftir að ég hafði athugað í honum skráptunguna, kornst ég á þá skoðun, að eðlilegast væri að telja hann sjálf- stæða tegund, þar sem hlið- artannafjöldi tungunnar er annar en hjá beitukóngn- um. Ég nota sama heitið á nýja kuðunginn og það, sem prófessor Thorson stakk upp á og verður þá vísindaheiti tegundarinnar: Buccinum superangulare (Thorson & Óskarsson). Á íslenzku hef ég svo kall- að hann stöðvarkóng. — Lýsing kuðungsins fer hér á eftir: Kuðungurinn stuttur og gildvaxinn, hvítgulur eða bláleitur á litinn. Hyrnan lítil fyrirferðar, allmiklu styttri — helmingi styttri en grunnvindingurinn. Hvirfillinn yddur. Vindingar hymunnar 5—6, flatir eða lítið kúptir, og er neðsti vindingur hennar með stýfðri brún. Grunnvindingurinn mjög mikill um sig, nærri flat- ur, með hárri þverstýfðri brún og oft með háum randkili, sem stundum slútir niður yfir brúnina. Saumurinn venjulega djúpur, en breytilegur að dýpt. Halinn og rennan lík því sem er á beitu- kóngi. Munninn allstór, 40 mm langur, óreglulega ferhyrndur eða þríhyrndur að lögun og með fremur þunnri útrönd. Stundum er 9. mynd. Stöðvarkóngur (Buccinum super- angulare). Stærsta eintakið, sein fundizt hef- ur lifandi. Ylirborðið afþakið kalkpípuorm- um og ungum hrúðurkörlum. (The surface of the shell is almost covered by Spirorbis and young Balanus). (Ljósm. G. Gestsson.)

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.