Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 37

Náttúrufræðingurinn - 1961, Síða 37
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 185 allt innra borð útrandarinnar og umhverfi munnviksins dökk- fjólublátt að lit. Að undanskildum tveimur efstu vindingunum er allt yfirborð kuðungsins sett grófum þvergárum og þéttstæðum, fíngerðum, en glöggum vaxtarrákum; auk þess mótar óljóst fyrir langfellingum á þremur eða fjórum neðstu vindingum hyrnunnar. Lokan skakksporlaga, 21 mm á lengd og 13 mm á breidd, og ligg- ur kjarninn 3,5 mm frá hægri brún lokunnar. Tannsettning skráp- tungunnar: 3.6.4. Stærsti kuðungurinn er 60 mrn á hæð og 45 mm á breidd. Eftir því, sem mér hefur vei'ið tjáð finnst stöðvarkóngurinn fyrst vorið 1959, og var það Anton Helgason að Löndum í Stöðv- arfirði, sem fyrst varð hans var. Annars hefur frú Petra Sveins- dóttir, sem fyrst kynnti þennan nýja kuðung, gert mér þann mikla greiða að afla ýmissa upplýsinga um hann samkvæmt ósk minni og kann ég henni beztn þakkir fyrir. Kuðungurinn hefur fundizt á 80 m löngu belti, alls 11 eintök, 6 dauð og 5 lifandi. Kuð- ungarnir eru mjög misjafnir að stærð og augsýnilega á ýmsum aldri. í Landabót er ströndin nokkuð grýtt og brimasöm, og rekur þarna mikið upp af þara. Nokkrar algengar skeldýrategundir linnast í þarabrúkinu og þar á meðal mikið af venjulegum beitukóngi, hef ég líka fengið nokkur eintök af honum til álits, en ekki getað séð neitt óvenjulegt við ltann. Hversu djúpt hin nýja tegund nær út í Landabót, er ekki vitað, þar sem enginn hefur reynt að afla liennar með botnsköfu, en slíkt væri nanðsynlegt til þess að geta gert sér einhverja hugmynd um magn tegundarinnar. Á meðan stöðvarkóngsins verður ekki annars staðar vart en í Landabót, væri mjög æskilegt, að lifandi eintök, sem kynnu að sjást, væru látin í friði. Að lokum vil ég biðja alla áhugamenn um náttúrufræði, að láta höfund þessarar greinar vita, ef umræddur kuðungur skyldi bera fyrir þá á nýjum stöðum.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.