Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 39

Náttúrufræðingurinn - 1961, Blaðsíða 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 187 ultimo tumido et penultimo ad suturam distincte carinatis, sutura impressa, apertura magna dimidia testa multo longiore, labro externo tenui supra medium in angulum fere rectum curvato. Superficies cingulis spiralibus ele- vatis regularibus dense obducta, plicis longitudinalibus fere obsoletis in anf- ractu ultimo evanidis, striis incrementi tenuibus valde numerosis et bene conspicuis, epidermide haud distincta. Operculum parvum dimidia apertura brevius, nucleo excentrico. Dentes radulae: 3.6.4 Cetera ut in Buccino undato. Magn: long. 60 mm, lat. 45 mm, apert. long. 40 mm. Spec. orig. Stöðvarfjörður in ora orientalis Islandiae, 1960. Ingólfur Daviðsson: Nornabaugar Ríki sveppanna er næsta fjölskrúðugt. Allir þekkja gorkúlurnar, sem þjóta upp eftir sláttinn á túnum, eða birtast furðu skyndi- lega á gömlum áburðarhaugum. Er vöxturinn undra hraður ef skilyrði eru góð. Niðri í jörðinni kvíslast ljósir sveppaþræðir, sem afla næringarefna, en sjálf gorkúlatr er aðeins tímgunarfæri, sem á haustin verður fullt af svörtu „ryki“ og kallast þá kerlingar- eldur eða skollaeldur. Hið dökka „ryk“ er raunar gró sveppsins. Geta gróin víða borizt með vindinum og upp af þeim vaxið nýjar gorkúlur. Gorkúlan er vel æt, meðan hún er ung og enn hvít í gegn. Ætur er líka hinn stóri, móleiti kúalubbi, sem víða vex út um hagana. Eru kýr sólgnar í hann, einkum í hitum. Smá pípur eru neðan á hatti hans eða hjálmi og í þeim myndast gróin. Helzti matsveppurinn er þó ætisveppurinn (Champignon), sem fæst hér í verzlunum. Vex hér einnig villtur; ber hvelfdan hjálm, með súkkulaðibrúnum blöðum neðan á. Myndast gróin á þessum blöð- um. Hjálmurinn situr á staf og svo eru sveppaþræðirnir niðri í moldinni. Ætisveppur er oft ræktaður í dimmum kjöllurum. Svepp- ir hafa nefnilega enga blaðgrænu. Þeir geta því ekki unnið kolefni úr loftinu og eru annaðhvort rotsveppir, eins og hinir fyrrnefndu, eða sníkjusveppir. — Myglusveppir eru mjög algengir á rökum

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.