Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 42
190
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
annarrar hliðar, og þess vegna færast rendumar til ár frá ári í
sömu átt. Fyrir kemur, að rendurnar eru þrjár, eða liringarnir
þrefaldir, þ. e. tvö dökkgræn belti og hálfvisin rönd í miðju.
Halda sumir að svepparnir tæmi, eða jafnvel eitri jarðveginn
smám saman og af því stafi visna röndin. Hugsast getur líka að
jarðvegurinn verði svo gegnofinn af sveppaþráðum, að vatn sígi
naumast niður. Muni þá gamla gróðurröndin visna af Jrurrki og
næringarskorti. En að síðustu rotna sveppaþræðirnir og verða að
köfnunarefnisríkri jurtanæringu. Gæti þetta orsakað aftari grænu
rákina eða innri græna hringinn. — Fyrst hefur nornasveppurinn
vaxið á litlum bletti. Ef sveppaþræðirnir deyja í miðjum blettin-
um, t. d. af næringarskorti, þá myndast hringur, sem að lokum
getur orðið furðu stór. Talið er nú, að cyanvatnsefnismyndun
sveppsins Clitocybe o. fl. hafi áhrif á jarðveg og gróður í noma-
baugum.
Það eru sérstakir hattsveppir, sem valda nornabaugunum, eins og
áður er nefnt. Hattarnir geta verið 3—5 cm á breidd og eru hálf
leðurkenndir á að líta á algengustu tegundunum. En hattarnir
koma ekki í ijós nema sum ár. Geta vel liðið nokkur ár milli
verulegra „hattára". Smáa nornabauga liafa ýmsir séð í grasi og
mosa. í Hleiðargarði í Eyjafirði hafa lengi sézt í graslendi stórar,
dökkgrænar rákir, sem e. t. v. geta verið risavaxnir nornabaugar.
I Englandi er talið að nornabaugur sveppsins Marasmius oreades
vaxi 13—48 cm á ári. Hefur samkvæmt þessu verið reiknað út, að
einstaka nornabaugar, sem lykja um allstór svæði, séu 400—600
ára gamlir! Hefur t. d. verið tekin mynd úr lofti af risavöxnum
nornabaugum, sem liggja umhverfis Stonehauge-rústiinar. — Á
gresjum Colorado í Bandaríkjunum hafa verið mældir nornabaug-
ar, sem reyndust um 200 metrar í þvermál. Erlendis hafa norna-
baugar stöku sinnum skemmt grasbletti og jafnvel trjágróður, svo
þurft hefur að grafa þá upp. Mikill áburður hefur virst draga
frekar úr sumum nornasveppum. Vallhumall þrífst vel í norna-
baugum, þótt gras og smári visni. í dauðu rákunum eftir „kempu
trekthatt“ drepast rósir o. fl. runnar, en flauelsblóm (Tagetes)
lifir. Sumar blómjurtir geta myndað einskonar nornabauga, t. d.
ein erlend blágresistegund (Geranium Robertianum).
Fróðlegt væri að frétta hvort margir hafa orðið varir við norna-
bauga hér á landi.