Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 45

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 193 Loks má geta þess að mér þætti vænt um að fá upplýsingar um útbreiðslu þessara sveppa og annarra, ef einhver kynni að veita. Bréf má senda til Náttúrugripasafnsins í Reykjavík (Grasafræði- deild.). Sigurður Pétursson: Það mun mörgum hafa þótt slæmar fréttir, er tilkynnt var ný- lega, að sýningarsal Náttúrugripasafnsins í Safnhúsinu við Hverf- isgötu væri lokað fyrir fullt og allt. Menn höfðu að vísu gert ráð fyrir því, að sýningarsafnið yrði flutt úr þessu húsi í náinni fram- tíð, en tæpast fyrr en tilbúin væri fyrir Náttúrugripasafnið bygg- ing sú á Háskólalóðinnþ sem margsinnis er búið að lofa. En hér var ekki því að heilsa. í stað hins ágæta húsnæðis, sem sýningar- safnið hafði í Safnhúsinu, kom ekki nein ný bygging, sniðin eftir kröfum tímans, heldur einn lítill salur uppi á þriðju hæð í húsi innundir Vatnsþró. Sennilega hefur salurinn í gömlu Glasgow ver- ið aðgengilegri, en þar var safnið til húsa á árunum 1895-1899. Þá voru íbúar Reykjavíkur um 5 þúsundir, en nú 71 þúsund. Hvað myndu þeir segja nú Benedikt Gröndal og Bjarni Sæmunds- son? Náttúrugripasafnið hefur alla tíð verið óskabam Hins íslenzka náttúrufræðifélags og alveg sérstaklega sýningarsalur safnsins. Mark- mið félagsins hefur alltaf verið að vekja áhuga almennings fyrir náttúrufræði, engu síður en að stuðla að vísindalegum rannsókn- um á náttúru landsins. Þess vegna getur félagið ekki talið nægilegt, að komið sé upp vinnustofum fyrir starfsmenn safnsins. Það hlýt- ur að krefjast þess, að haldið sé opnum myndarlegum sýningar- sal, þar sem bæði ungir og gamlir geta skoðað og lært að þekkja hinar algengustu tegundir dýra, jurta og steina. Þessa hefur Hið íslenzka náttúrufræðifélag nokkurn rétt til að krefjast, í fyrsta lagi vegna þess, að félagið kom upp Náttúrugripasafninu, jók það

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.