Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 35
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
2. mynd. Op sandskelja eru sjáanleg ífjörusandinum á stórstraumsfjöru. Ljósm. Þórður
Örn Kristjánsson.
Sandskel verður kynþroska 20-50
mm að lengd og er þá 1-4 ára
gömul allt eftir vaxtarskilyrðum.5
Talið hefur verið að hitastigið þurfi
að vera 10-12°C til þess að hrygn-
ing sandskeljar heppnist10 en dæmi
eru um vel heppnaða hrygningu
við 4-6°C.8 Erlendis hrygnir sand-
skel einu sinni eða tvisvar á ári eftir
staðsetningu. í Óslóarfirði" og á
Cornwall í Englandi12 hrygnir skelin
tvisvar á ári en við Hróarskeldu í
Danmörku13 og við austurströnd
Norður-Ameríku, frá Kanada suður
til Main,14 er aðeins um einn hrygn-
ingartíma að ræða. Fyrir sunnan
Main er talið að sandskel hrygni
tvisvar á ári.8 Eftir að eggið frjóvg-
ast eru lirfur sandskelja sviflægar í
sjónum í allt að 4 vikur og setjast
eftir það á botninn.15 Mikil afföll eru
á lirfunum fyrstu dagana eftir
frjóvgunina og þar til þær hafa
grafið sig niður í botninn.16
áberandi aftan til þar sem rani kemur
út úr þeim (1. mynd). Raninn er
myndaður úr tveimur samvöxnum
pípum, þ.e. innstreymis- og út-
streymishluta. Skelin dælir sjó inn
um innstreymisopið, gegnum tálkn-
in og út um útstreymisopið. Ur sjón-
um síar hún fæðuna, sem sam-
anstendur af svifþörungum, svifdýr-
um, bakteríum, eggjum og lirfum
ýmissa dýra auk lífrænna leifa.1
Sandskel verður yfirleitt 60-100 mm
að lengd2 og telst til langlífra skelja-
tegunda. Skelin nær í flestum tilfell-
um 10-20 ára aldri en dæmi eru um
28 ára gamla skel úr Fundy-flóa.3
Sandskel lifir niðurgrafin í seti
fjörunnar eða sjávarbotnsins en
sendir rana sinn upp á yfirborðið og
myndar þar op. Ranaopið má
greinilega sjá í setinu sem litla holu
(2. mynd). Sandskelin er 5-20 cm
djúpt niðri í setinu, mælt frá yfir-
borði niður að efri skelrönd. Stærri
skeljar hafa lengri rana og liggja
dýpra en þær smáu. Dæmi eru um
að sandskel grafi sig niður á allt að
50 cm dýpi. Akjósanlegustu bú-
svæði sandskelja eru talin vera í
sandbotni eða sand- og leirblönd-
uðum botni. í grófum sandi (korna-
stærð >0,5 mm) á hún erfitt með að
grafa sig niður.4
Vöxtur sandskelja er breytilegur
og fer aðallega eftir umhverfisað-
stæðum, þ.e. fæðuframboði, seltu,
kornastærð í botni, straumum og
staðsetningu skeljanna í fjörunni.5
Skeljar sem oft flæðir ofan af vaxa
hægar en þær sem alltaf eru neðan-
sjávar. I Alaska getur sandskel náð
51 mm lengd á 6-7 árum en sömu
lengd á aðeins einu og hálfu ári við
austurströnd Bandaríkjanna.6
Mest finnst af sandskel í fjörum
opinna fjarða og á lygnum strand-
svæðum, nærri fjöruborði stór-
straumsfjöru og niður á 10 m dýpi,
en erlendis frá eru dæmi um að
skelin finnist allt niður á 192 m
dýpi.71 fjörunni er algengt að skelin
finnist við árfarvegi. Sandskel getur
lifað við mismunandi seltu, allt nið-
ur undir 4-5 %o. Talið hefur verið að
syðri útbreiðslumörk, bæði fyrir
fullorðin dýr og lirfur, séu við 28°C
en þau nyrðri takmarkist við hita-
stig á hrygningartíma, sem er
breytilegt eftir staðsetningu skelj-
anna.8-9
NÝTING
Sandskel er eftirsótt og dýr mat-
vara víða um heim en jafnframt
hefur hún verið notuð sem beita
við línuveiðar. A austurströnd
Bandaríkjanna er hefð fyrir veiðum
og neyslu sandskeljar og þar er
jafnframt stærsti markaðurinn fyrir
skelina. Sandskelin er ýmist stung-
in upp með göfflum og tínd upp
með höndum (3. mynd) eða veidd
á minni bátum með plógum allt
eftir staðsetningu og magni skelj-
anna. Skelin er þunn og því við-
kvæm fyrir hnjaski og gerir það
allar nytjar hennar erfiðari. Ungar
skeljar (<50mm) sem komnar eru
upp á yfirborð geta grafið sig hratt
niður í botninn aftur, en þessi eig-
inleiki minnkar með aukinni stærð
skeljanna.17 Lífslíkur stærri skelja
sem hafa verið stungnar upp og
skildar eftir í fjörunni eru því ekki
miklar.
Á undanförnum árum hefur
sandskel við austurströnd Banda-
ríkjanna fækkað mikið vegna of-
veiði og mengunar og því dregið úr
framboði, en samhliða því hefur
35