Náttúrufræðingurinn - 1959, Blaðsíða 18
128
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
í brúna sandsteininum í efri hluta eyjunnar sést nokkuS af fok-
möl en einnig gosmöl ofantil. Efst er svo greinilegur jökulruðning-
ur. í Kerlingunni er sama efni og í neðri hluta Drangeyjar.
14. mynd.
Drangey.
1, Uppgönguvík
2, Lambhöfði
3, Heiðnavík
4, Gafl.
Yfirlit yfir nidurstöður.
Á tertiera tímanum höfðu á Miðnorðurlandi myndast breiðir
þroskaðir dalir er sjór stóð um 300 m hærra en nú, miðað við landið
(eldri dalir, eldra dalaskeið). Síðan l'éll sjávarborð um hér um bil
200 m og hófst þá yngra dalaskeið. Sjór stóð mjög
lengi við þessi mörk svo að allir stærri dalir gróf-
ust niður og löguðust að þeim. Jafnframt myndað-
ist breiður strandflötur, sumstaðar 2—3 km breið-
ur, en ef til vill hefur verið um talsvert víðlendari
flatneskju að ræða norðan við landið.
Á þennan strandflöt leggjast myndanirnar við
Skagafjörð. Fyrst kemur grár lagskiptur sandsteinn,
oft með verulega hallandi lögum. f suðurhluta
Málmeyjar er ljóst, að lagahallinn er upprunaleg-
ur og af honum verður ráðið, að efnið hefur kom-
ið norðan að. Hið sama virðist mega í'áða af lög-
unum í Hrolleifshöfða. Sú skýring virðist mér helzt
koma til greina, að sjór hafi borið sandinn inn yfir mjög lágt land.
Efst í þessari sandmyndun kemur fyrir molaberg, sem mjög
líkist jökulruðningi (Málnrey, Þórðarhöfði). Þó vantar öruggar
ísrákir á undirfletinum eða á hnullungum áður en hægt er að telja
hér ótvíræð merki um að
jökull hafi gengið yfir þess-
ar slóðir. Það er auðvitað
ljóst, að ekki þarf ísöld til
að jökulvatn og jökulleir
berist út eftir Skagafirði,
það gerist þann dag í dag. Og áður en strandílöturinn grófst í sund-
ur gat jökulleir og árgrjót auðveldlega hafa borizt þangað sem nú
er Málmey eða Þórðarhöfði. Auk þess kemur hafís til greina, ef
Jrað er rétt að grái sandurinn sé myndaður af sjó. Af þessum sök-
um verður að gæta sérstakrar varúðar áður en hér er talað um
vegsummerki jökultíma.
Næst leggst brúnn sandsteinn yfir allt svæðið frá Hi-ollleifshöfða
15. mynd. Drangey að austan. (From below;
volcanic tuff, bascdt sill, sandstone, moraine).