Náttúrufræðingurinn - 1959, Blaðsíða 33
NATTÚRUFRÆÐINGURINN
143
eldra en petta lag, p. e. a. s. frá 1341 eða enn eldra, sennilega frá
1300 eða jafnvel frá 1222.
Þessi niðurstaða hefur örlagaríkar al'leiðingar fyrir fyrri skoð-
anir manna um það, að Skarð og Tjaldastaðir hafi staðið sunnan
undir Slakka og Háafjalli og orðið undir Suðurhrauni, því þar eð
aldursákvörðunin á 1510-laginu er mjög áreiðanleg, og þar eð Norð-
urhraun er örugglega undir því lagi, og þar eð minnst eitt Heklu-
gos hefur átt sér stað milli þess, að Suðurhraun rann og þar til
Norðurhraun rann, hefur Suðurhraun í seinasta lagi runnið 1341,
þ. e. Skarð og Tjalclastaðir hafa ekki getað orðið undir því 1389.
Það gefur aftur á móti til kynna, að Skarð og Tjaldastaðir geta
ekki hafa verið sunnan undir Slakka eða Háafjalli, eins og talið
hefur verið og sagt er að „munnmæli hermi“. Bæirnir geta því
ekki hafa verið annars staðar en þar, sem Norðurhraun er nú, eins
og síðar verður nánar rökstutt.
Áður en ég liverf frá því að ræða öskulögin, vil ég gera grein
l'yrir aldursákvörðunum mínum á þeirn lögum, sem sýnd eru á
2. mynd, en eru ennþá ekki rökstuddar. Þær aldursákvarðanir liafa
engin áhrif á rök mín fyrir því, hvar bæirnir hafa staðið, en hafa
gildi fyrir frekari aldursákvarðanir á öskulögunr og hraunum við
Heklu.
1389-lagið er áreiðanlega frá Heklu eða Heklusvæðinu, því að
þetta lag er greinilegt og þunnt á milli Selsundsfjalls og Geldinga-
fells. Við Selsund er það og þunnt en gróft. Þykkt lagsins breyt-
ist mjög þvert yfir vikið í Norðurhraun næst Gráfelli. Á Gráfells-
hálsi, Efrahvolshrauni og í Selskarði er lagið þykkt, gróft og nálar-
kennt. Þessa grófleikabreytingu er aðeins hægt að skýra ef gert er
ráð fyrir, að öskulagið sé frá gosi á Heklusvæðinu. Öskufallið lief-
ur verið þannig, að það samrýmist ekki lýsingum af öskufallinu í
1341-gosinu. Þetta lag getur því vart verið frá öðru gosi en gosinu
1389, nema ef það væri þá frá gosinu um 1440. Þetta lag er lík-
lega jafngamalt Norðurhrauni, a. m. k. ekki yngra, og sést það m.
a. á því, að um það bil 300 m norðan Selsunds hefur Norðurhraun
runnið yl'ir hvítan vikur (ljósguli vikurinn við Selsundslæk). Strax
og hraunið hafði runnið, salnaðist mold að því, og þar má finna
svarta fíngerða lagið, þ. e. 1477-lagið, sem er milli 1389-lagsins og
1510-lagsins, en 1389-lagið sést ekki. Þetta lag finnst heldur ekki á