Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 21
NA T T Ú R U F RÆI) IN G U RINN
15
eða dregur úr myndun afturhlutahormóns. Við það eykst þvagmagn-
ið, unz vatnsmagn líkamans er komið í eðlilegt horf, en þá sendir
afturhluti heiladinguls á ný frá sér eðlilegt magn hormónsins.
Ef hormóni þessu er dælt inn í mann eða dýr, hækkar blóðþrýst-
ingurinn, því að æðarnar þrengjast. Þetta er þó sennilega ekki eðli-
legt hlutverk hormónsins, því að svo mikið þarf af hormóninu til
að hækka blóðþrýstinginn, að trúlega losnar það aldrei svo ört við
ná 11úrulegar aðstæður.
Hitt afturhlutahormónið framkallar samdrátt í legvöðva — fæð-
ingarhríðir — hjá konum og kvendýrum. Þetta hormón er stundum
gefið konum, ef langur tími líður frarn ylir eðlilegan meðgöngu-
tíma án þess að fæðingarhríðir hefjist, eða ef hríðir stöðvast eftir að
íæðing er hafin.
Sarna hormón losar um mjólk í mjólkurkirtlum, er afkvæmið
sýgur, eða þegar kýr er mjólkuð. Um hálf mínúta líður frá því að
mjaltir hefjast, þar til mjólk kemur frarn í spenana. Við strokurnar
berst taugaboð upp til heilans, sem losar um hormón í afturhluta
heiladinguls, er veldur samdrætti í sléttum viiðvum í mjólkurkirtl-
unum, svo að mjólkin þrýstist út í spenana.
Miðhluti heiladinguls er lítt þroskaður í mönnum og hlutverk
hans óþekkt þar, sem með öðrum spendýrum. Hann gefur frá sér
hormón, sem liefur áhrif á litaskipti fiska og froskdýra, en þessi
dýr hafa í lniðinni sérlegar frumur, sem skipt geta litum eftir um-
liverfi og likamsástandi dýranna. Engar slíkar frumur eru í húð æðri
hryggdýra. Kannski er miðhluti heiladinguls úrelt líffæri í þessum
dýrum. Þó hafa sumir vísindamenn þótzt geta merkt einhver áhrif
miðhlutahormóns á menn.
í framhluta heiladinguls verða til allmörg hormón. Meðal annars
hefur heiladingullinn stjórn á störfum nokkurra mikilvægra inn-
kirtla. Hann gefur frá sér hormón, sem örva innkirtlana til starfa
eða auka stærð þeirra. Innkirtlar þeir, sem lúta á þennan hátt stjórn
heiladinguls eru kynkirtlar, skjaldkirtil 1 og nýrnahettubörkur. Auk
Jæss hefur framhluti heiladiuguls áhrif á mjólkurkirtla og stýrir
vexti líkamans.
Nú telja menn, að Jrrjú hormón úr framhluta heiladinguls hafi
áhrif á starfsemi kynkirtla, að minnsta kosti hjá konum og kven-
dýrum. Ekki er eins vel Jrekkt til áhrifa hvers þessara yfirkynhor-
móna á kynstarfsemi karla.