Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1935, Síða 4

Náttúrufræðingurinn - 1935, Síða 4
IV XÁTTÚ RUFRÆÐING URINN að hækka verðið í þessi fimm ár, hann hefir engin feigðarmerki á sér sýnt. A þessum fimm árum hafa komið út af Náttúrufræðingnum 12 arkir á ári, eða 60 arkir samtals. Ritið hefir auðgað íslenzkar bókmenntir um 910 bls. af hreinni náttúrufræði, einmitt því faginu, sem alls staðar kallar hæzt á athygli allra 20-aIdar-manna. Hann hefir birt um 280 myndir, eða að meðaltali mynd á 3.—4. hverri blaðsíðu. Hann hefir birt ritgerðir eftir rúmlega 60 höfunda, þar á meðal flesta þá íslendinga, sem eitthvað fást við náttúrufræði, og auk þess greinar eftir 4 erlenda 'vísindamenn. I Náttúrufræðingnum hafa alls komið tæpar 300 greinar, sem hafa fjall- að um dýrafræði, mannfræði, læknisfræði, grasafræði, námufræði, lamd- fræði, eðlisfræði, efnafræði, verkfræði, veðurfræði, stjörnufræði o. fl. Náttúrufræðingurinn hefir reynt að vera útvörður til þess að kynna lesendum sínum allar þær nýjungar úr náttúrufræði, sem til hans hafá komizt, eða hann hefir náð til, og þær bækur, sem ritaðar hafa verið á íslenzku um náttúrufræði, eða um íslenzka náttúrufræði á íslenzku og öðrum málum. Þar að auki hefir hann verið athvarf þeirra, sem éinhverju markverðu höfðu að miðla öðrum, náttúrufræðilegs efnis, öruggur lend- ingarstaður fyrir ýmsan fróðleik og nýjungar, sem voru þess virði, að geymast, en gleymzt hefðu, ef hans hefði ekki notið við. Allt hvað líður, fer það að hafa nokkurn kostnað í för með sér, að eignast Náttúrufræðinginn frá byrjun. Þess vegna vill sjálft afmælisbarn- ið að þessu sinni gefa afmælisgjöfina þeim, sem þiggja vilja, en hún er: Nátturufræðingurinn I.—V. árg. fyrir aðeims kr. 15.00 eða fyrir áðeins háSfvirði. Vegna þess að „upplagið“ er takmarkað, nær þó þetta tilboð aðeins til þeirra 100, sem gefa sig fyrst fram eítir að þetta hefti er komið út, og síðan verða áskrifendur. í’ilboð þetta stendur aðeins þangað iil 1. ágúst þetta ár, og staðgreiðsla á þessum fimm árgöngum, og 6. árg. verð- ur að fara fram. 6. árgangurinn kostar 6 krónur, það er áskriftarverð Náttúrufræðingsins. Á. F.

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.