Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 5

Náttúrufræðingurinn - 1935, Page 5
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 145 iiiimimimimiiiiimiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii Ættgengi. ------- Niðurl. Ef við nú virðum fyrir okkur tvo eiginleika í senn, og rann- sökum ættgengi þeirra, verður viðfangsefnið strax nokkuð flókn- ara. Hugsum okkur tvo snigla, annan með gulum kuðung, randa- lausum, en hinn með rauðum kuðung með svörtum röndum, og gerum ráð fyrir, að sniglarnir séu kynhreinir hvað kuðunginn snertir. Hér er að ræða um tvenna eiginleika, nefnilega í fyrsta lagi litinn á kuðungnum, því að annar snigillinn hafði gulan en hinn rauðan kuðung, og í öðru Jagi rendurnar á kuðungn- um, sem annar snigillinn hafði, en hinn ekki. Nú látum við sniglana æxlast, og það kemur þá í ljós, að alt afkvæmið fær V mynd. Sniglar (Helix nemoralis) með röndóttum og randalausum kuðung. (Ö. Winge: Arvelighedslære, Köbenh. 1928). rauða, randalausa kuðunga. Hér ríkir með öðrum orðum eigin- leikinn rauður kuðungur yfir eiginleikanum gulur kuðungur, og eiginleikinn randalaus ríkir yfir eiginleikanum röndóttur. Nú látum við afkvæmin æxlast, og eignast ný afkvæmi, og at- hugum hvorn þessara tveggja eiginleika fyrir sig. Við sjáum þá, eins og var að vænta, að þrír fjórðu hlutarnir af sniglunum hafa rauðan kuðung, einn fjórði hluti gulan, og þrír fjórðu hlut- ar hafa randalausan kuðung, en einn fjórði hlutinn röndóttan. 1 öðru lagi komumst vér að raun um, að eiginleikarnir rauður og röndóttur, eða eiginleikarnir gulur og randalaus, fylgjast eltki, eins og þeir gerðu hjá afanum og ömmunni, því að meðal sniglanna eru sniglar með rauðum og randalausum kuðung, og sniglar með gulum og röndóttum kuðung. Þetta gefur tilefni til umhugsunar. I fyrsta lagi er það ljóst, að til dæmis eigin- leikinn röndóttur er alveg sjálfstæður, og í engu föstu sambandi við eiginleikann rauður. í öðru lagi sést það, að gen þau, sem 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.