Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 6

Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 6
146 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111} ráða litnum, nefnilega rauðu og gulu, og þau gen, sem ráða röndunum, geta ekki verið í sama litþræði, þar sem þessir tveir eiginleikar ganga í ættir alveg óháðir hvor öðrum. Eg hefi endurtekið það, að þegar kynsellur myndast af vanalegum lík- amsselium, verða tvær kynsellur úr hverri einni líkamssellu, og litþræðir kynsellnanna skiptast jafnt á milli kynsellnanna, þannig að annar tvíburinn, eða annar hvor af tveimur, sam- ræmum litþráðum, fer í aðra selluna en hinn í hina. Litþræð- irnir ganga með öðrum orðum heilir frá upphafi til afkvæm- isins, og hverjum litþræði fylgja allir þeir eiginleikar, sem samsvara þeim genum, sem litþráðurinn ber í skauti sínu. En af þessu leiðir aftur, að margir eiginleikar ganga í ættir sam- an, af því að genin, sem valda þeim, eru tengd saman í sama litþræði. Þessi gen nefnast því samtengd gen. Það er nú auðskilið, að eiginleikinn rauður, og eiginleikinn röndóttur, hafa haft aðsetur sitt hvor í sínum litþræði, því að þeir alveg óháðir hvor öðrum að öllu leyti. Ef þeir hefðu verið í sama litþræði, hefði mátt gera ráð fyrir, að þeir hefðu fylgst meira en raun varð á. Þó að þeir eiginleikar, sem tengdir ,eru saman í sama lit- þræði, fylgist að jafnaði, þá er það þó mjög algengt, að þeir skilji, og erfist síðan óháðir hver öðrum, hvor fyrir sig. Þetta fyrirbrigði liggur í því, að litþræðirnir geta stundum eins og gengið í samband hver við annan, þannig að partar úr öðrum þræðinum losna frá hinum hluta þráðarins, og festist við hinn þráðinn, og samsvarandi partur hans losni, og bætist við þann fyrri í staðinn. Þegar svona vill til, þegar tveir litþræðir skipt- ast á pörtum, býtta þeir einnig öllum þeim genum, sem fylgja partinum, svo að þau ganga nú í ættir alveg óháð öðrum gen- um, sem þau stóðu áður í sambandi við, og virtust fylgja stöðugt. Eitt af þeim dýrum, sem er allra mest rannsakað með tilliti til ættgengis, er hin svonefnda bananfluga, sem Ameríkumenn hafa lagt mjög mikla rækt við. Hjá bananflugunni hafa fundist mörg hundruð eiginleikar, s,em ganga í ættir. Það hefir tek- izt að benda á, hvernig þessum eiginleikum er skipt niður í lit- þræðina, já, það hafa meira að segja verið færð rök að því, hvar í hverjum litþræði orsök einhvers ákveðins eiginleika á heima. Það hefir komið í ljós við þessar rannsóknir, að orsakir eiginleikanna, eða genin, liggja í röðum í þráðunum, þannig, að

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.