Náttúrufræðingurinn - 1935, Síða 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 153
IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII
Arangur íslenzkra fuglamerkinga.
IX.
Erlendis hafa náðst:
Smyrilsungi (Falco columbarius subaesalon), merktur
(5/335) í hreiðri hjá Hriflu í Suður-Þingeyjarsýslu, þ. 7. júlí
1935. Tekinn í Preston, Lancashire á Englandi, seint (?) í nóv-
ember 1935.
Grágæs (Anser anser), merkt (2/255), fullorðin, í sárum
(?), hjá Orrastöðum í Austur-Húnavatnssýslu, þ. 8. júlí 1934.
Skotin þ. 2. nóvember 1935 við Wigtown-Bay á Suðvestur-Skot-
landi.
Urtönd (QuerquecLula c. crecca), skotin þ. 17. október 1935,
í Scull, Co. Cork á írlandi. Þetta reyndist vera kvenfugl og er lík-
lega ungi frá því í sumar. Hún var merkt (5/66) í sumar ein-
hversstaðar í Skagafirði, en hvar og hvaða dag er ókunnugt, þeg-
ar þetta er ritað. Merkjandinn, hr. Hermann Stefánsson, slasað-
ist í vetur af byssuskoti, er hann var á rjúpnaveiðum, og hefir af
þeim ástæðum ekki getað gengið frá merkjaskrám sínum enn þá.
Rauðhöfðaönd Mareca penelope), merkt (4/588), þ. 27.
júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Þetta er ungi. Skotin þ. 30.
október 1935, í Thurso í Katanesssýslu á Skotlandi.
Rauðhöfðaönd (Mareca penelope), merkt (4/38), á eggj-
um, hjá Grímsstöðum við Mývatn, þ. 6. júní 1933. Skotin þ. 15.
október 1935, á Loch Stenness í Orkneyjum.
Hrossagaukur (Capella gallinago faeroensis), merktur
(6/956), þ. 21. júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Skotinn á
North Uist-ey, á Suðureyjum við Skotland, þ. 21. október 1935.
Stelkur (Tringa totanus robusta), ungi, merktur (5/475),
þ. 5. júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Skotinn 23. október
1935, á North Ronaldshay Island, í Orkneyjum.
Lóa (Pluvialis apricarius altifrons), ungi, merktur (5/865),
þ. 5. júlí 1935, á Skjaldfönn í ísafjarðarsýslu. Skotin þ. 28. nóv-
ember 1935, í Dartmoor Forrest, S. Devon á Englandi.
Svartbakur (Larus marinus), ungi, merktur (3/243), þ.
18. júlí 1935, í Berjanesi í Landeyjum. Skotinn í Suðurey í Fær-
eyjum þ. 1. október 1935.