Náttúrufræðingurinn - 1935, Blaðsíða 14
154 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
Innanlands hefir spurzt um:
Hrafnsungi (Corvus corax tibetanus), merktur (3/257),
þ. 4. júní 1935, í Árnesi í Þjórsá. Skotinn á Hæli í Árnessýslu þ.
1. nóvember 1935.
Hrafnsungi (Corvus corax tibetanus), merktur (3/260),
þ. 4. júlí 1935, í Árnesi í Þjórsá. Fannst dauður hjá Mjósundi í
Flóa, um haustið 1935. (Sjá Morgunblaðið þ. 11. des. 1935).
Tveir þúf utittlingsungar (Anthus pratensis), merkt-
ir (8/619 og 8/565), á Grímsstöðum við Mývatn, þ. 9. júlí og
14. júlí 1935. Fundnir dauðir sama staðar seinna um sumarið.
Þúfutittlingsungi (Anthus pratensis), merktur (8/
356), þ. 11. júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Drepinn af
ketti sama staðar þ. 15. sama mánaðar.
Tveir skógarþrastarungar (Turdus musicus coburni),
merktir (7/604 og 7/605), þ. 4. júní 1935, á Grímsstöðum við Mý-
vatn. Drukknuðu þar í gjá tveim dögum síðar.
Skógarþröstur (Turdus musicus coburni), merktur (6/
864) fullorðinn, á Akureyri, þ. 2. febrúar 1935. Drepinn af ketti
sama staðar þ. 2. marz 1935.
Gráþröstur (Turdus pilaris), merktur (6/866), fullorðinn,
á Akureyri, þ. 2. febrúar 1935. Fannst dauður sama staðar þ. 5.
marz 1935.
Gráþröstur (Turdus pilaris), merktur (6/867), fullorðinn,
á Akureyri, þ. 3. febr. 1935. Fannst dauður sama staðar snemma
í marz 1935.
Rauðhöf ðaönd (Mareca penelope), ungi, merktur (4/
579), á Grímsstöðum við Mývatn, þ. 26. júní 1935. Skotin sama
staðar þ. 23. september 1935.
Rauðhöfðaönd (Mareca penelope), ungi, merktur (4/
586), þ. 25. júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Fannst dauð-
ur sama staðar þ. 6. september 1935.
Duggönd (Nyroca m. marila), fullorðinn bliki, merktur
(3/441), þ. 24. júní 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Fannst
dauður sama staðar þ. 30. sama mánaðar.
Duggönd (Nyroca m. marila), fullorðin, merkt (4/164), á
hreiðri hjá Grímsstöðum við Mývatn, þ. 26. júní 1933. Tekin á
hreiðri sama staðar þ. 10. júlí 1935 og endurmerkt (3/^50).
Skúfönd (Nyroca fuligula), ungi, merktur (4/666), þ. 2.
ágúst 1935, á Grímsstöðum við Mývatn. Fannst dauður sama stað-
ar þ. 14. sama mánaðar.