Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 17

Náttúrufræðingurinn - 1935, Side 17
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 157 tiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiimmiiimiiiiimiiiiiiiiiiimiiimiiiimiimiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiuiiiiiiii stöðum við Mývatn, þ. 19. júlí 1935. Fannst dauð sama staðar þ. 6. september s. á. Kríuungar (Sterna macrura), sjö að tölu, merktir (6/948, 6/950, 6/970, 6/1208, 6/1212, 6/1216, 6/1221), á Gríms- stöðum við Mývatn, dagana frá 20. júní til 16. júlí 1935. Fund- ust dauðir sama staðar skömmu síðar. Tveir kríuungar (Sterna macrura), merktir (7/637 og 7/638), á Grímsstöðum við Mývatn, þ. 10. júlí 1935. Fundnir dauðir sama staðar nokkuru síðar. K r í u u n g i (Sterna macrura), merktur (7/710), þ. 3. júlí hjá Reykjahlíð við Mývatn. Tekinn heima við bæ á Grímsstöðum þ. 23. ágúst, eltur af fálka. Var ómeiddur og var sleppt aftur. R j ú p a (Lagopus mutus islandorum), fullorðin, merkt á eggj- um hjá Skógum í Axarfirði, þ. 5. júlí 1935. Skotin hjá Vogum við Mývatn, í byrjun nóvembermánaðar 1935. M. B. Tunglfisk rekur. Hinn 17- nóvember 1935 rak tunglfisk á Borgarhafnarfjöru í A.- Skaftafellssýs(u. Þetta var vestan við svonefnda Hálsa, sem eru fram af Hestgerðismúla, en út af Hálsunum er sagt, að oft séu hnísur og selir. Eftir þeim upplýsingum, sem hr. Skarphéðinn Gíslason, Vagnsstöðum, lét mér í té bæði í síma og bréflega, þá hefir þessi fiskur verið 235 cm á lengd, og þyngdin hefir líklega verið ein 500 kg eða meira. Segir heimildar- maður minn, að átta menn hafi reynt að draga skepnuna, og ekki tekizt að mjaka henni nema á að gizka um 10 cm í hverjum rykk. Hér hafa fundizt eitthvað 6—8 tunglfiskar áður, sem sögur fara af; um það má lesa í „Náttúrufræðingnum“, I. árg., 1931, bls. 164. Á. F.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.