Náttúrufræðingurinn - 1935, Síða 22
162 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
iniiiimiiiiiimmmiiiimiiiiiimiiiiiimimiiiiiimmiiiiiiMimimmiiiiiimiiiiimmiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiii
hafa þeir orðið að fást við frekara aðkallandi viðfangsefni, og
hefir því íslenzk fuglafræði yfirleitt orðið að sitja á hakanum.
Ýmsir erlendir náttúrufræðingar hafa oft komið hingað og
koma stundum enn þá í fuglafræðilegum rannsóknar-erindum, en
flest af því, sem þeir hafa ritað um rannsóknir sínar hér, hefir
farið fyrir „ofan garð og neðan“ hjá okkur, þar eð ritgerðir þeirra
hafa birzt í hinum og þessum sérfræðiritum erlendum, sem sjaldn-
ast koma fyrir augu hérlendra manna, en sárafáir hafa skrifað
sérstakar bækur um rannsóknarstörf sín hér á landi. Frá þessu
eru þó heiðarlegar undantekningar, og er í þessu efni bæði skylt
og geðfellt að geta þriggja vísindamanna, sem mest og bezt hafa
rannsakað og ritað um íslenzka fuglafræði og eigum við þeim að
þakka þá þekkingu, sem þegar er fengin á þessu sviði, en það eru
þeir Friedrich Faber, danskur maður, sem kom hingað árið 1819
og dvaldist hér á landi í tvo vetur og þrjú sumur, eða samfellt í
2 Y2 ár, við vísindalegar fuglarannsóknir. Er hánn með réttu tal-
inn frum-höfundur eða faðir vísindalegrar fuglafræði íslenzkrar.
Frá honum höfum við það, sem við vitum enn þá um fjölmarga
íslenzka fugla, og hafa síðari tíma rannsóknir þar engu haggað;
á mörgum sviðum stendur þekking okkar enn þá kyrr, þar sem
Faber skildi við hana, þ. e. merki hans liggur enn þá þar, sem
hann hneig í valinn, og er það okkur íslendingum lítill sómi að
láta slíkan mann liggja óbættan, þ. e. látið starf hans falla niður
og næstum gleymast. Það, sem Faber kenndi okkur um rjúpuna
okkar, er næstum það eina, sem við vitum um hana með vissu.
Hann var sá fyrsti, sem tók eftir því að íslenzka rjúpan er í mörgu
frábrugðin rjúpunum í nágrannalöndunum, sem þó voru þá tald-
ar til sömu tegundar, bæði í vexti og útliti og í lifnaðarháttum.
Hann rannsakaði rjúpuna með þeirri nákvæmni og samvizkusemi,
sem honum var eiginleg, frá því hún kom úr egginu, þangað til
hún var fullorðin. Hann mældi hana og lýsti henni að hætti fræði-
manna sem sérstakri tegund, sérkennilegri fyrir ísland, og þó að
honum tækist ekki að sannfæra samtíðar fræðimenn um réttmæti
þessarar kenningar sinnar, er hún nú almennt viðurkennd og
rjúpan ber nú það fræðilega heiti, sem Faber gaf henni, það er
L. mutus islandorum, Faber. En Faber gerði fleira, hann athug-
aði lifnaðarhætti rjúpunnar, eftir því sem föng voru til, og fylgdi
henni eftir á ýmsum tímum æfi hennar, og eins og eg tók fram
áðan, hafa síðari tíma menn þar litlu eða nær engu við að bæta,
og þeir, sem síðar hafa að einhverju leyti fetað í fótspor hans,