Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 34

Náttúrufræðingurinn - 1935, Qupperneq 34
174 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiin inn var aðeins þrjú og hálft stig, og kom það þá í ljós, að báðir mælarnir sýndu þennan hita eftir lítinn tíma, engu síður sá mæl- irinn, sem brumverjurnar hafði, en hinn. Munurinn varð aðeins sá, að verjulausi mælirinn þurfti ekki nema níu mínútur til þess að fá þann hita, sem umhverfið hafði, en hinn mælirinn, sem varinn var, þurfti þrjátíu mínútur til þess að jafna sig. Annað fyrirbrigði, sem einnig mælir á móti því, að brumverjurnar séu til skjóls, er það, að vökvinn í bruminu getur frosið og orðið að ís, og það sama er að segja um greinar og stofn, í þeim getur einnig myndast ís, svo að korkurinn er eigi fær um að vernda gegn kulda, ekkert frekar en brumverjurnar. Eg þykist nú hafa gert nokkra grein fyrir vörnum þeim, sem plönturnar hafa til að tjalda gegn jötunafli vetrarins, og þá eink- um tekið tillit til íslenzkra plantna, — hér verður að láta staðar numið. En í sambandi við þetta efni má þó vart undir höfuð leggj- ast að minnast lítilsháttar á mismun þann, sem mismunandi lofts- lag skapar gróðrinum, ekki sízt trjágróðrinum á mismunandi stöðum á jörðinni. í norðlægum löndum, þar sem mikill er mun- ur sumars og veturs, er mikið af barrtrjám, en blöð þeirra eru eins og kunnugt er líkar nálum að lögun, og þannig vel úr garði gerð til þess að verjast útgufun, þar sem yfirborð þeirra er svo lítið í samanburði við rúmmálið. Þessi tré þurfa því ekki að fella blöðin á haustin, og standa því ein allra norrænna trjáa með sí- græn blöð. Undantekning frá þessari reglu er þó barrfellirinn, hann fellir barrið, en þannig eru blöð barrtrjánna nefnd á haustin. Öll önnur norræn tré fella laufið á haustin, eins og eg hefi gert grein fyrir. Komum við til suðrænna landa, þar sem lítill munur er árstíða, fá skógarnir allt annan svip. Þeir eru sígrænir árið í kring, blöðin falla af smátt og smátt, en nýjar fylkingar koma jafnóðum í stað þeirra, sem falla til jarðar. Áður en eg lýk þessu máli, skulum við sem allra snöggv- ast hvarfla huganum út í hafið, sem skolar strendur Is- lands, og minnast þeirra miklu gróðurbreytinga, sem þar verða, þegar þörungamilljarðarnir, sem svífa í djúpinu við yfirborð sjávarins, búa sig undir veturinn. Á sumrin lita þeir hafið með mergð sinni, hver kynslóðin fæðist á fætur annarri, allt lífið í sjónum byggist á því, að á hverju augnabliki fæðist milljónir — og deyi milljónir. En á haustin hverfa þeir því sem næst með öllu, eins og grasið á túni bóndans. Alveg eins og grösin íklæð- ast þeir einskonar hvílugerfi, sem dauðinn vinnur ekki á, og má

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.