Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 2
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Rit Jónasar Hallgrímssonar.
5. bindið er nú komið úf. Er það síðasfa bindið af ritum Jónasar og
fylgir þvi ítarleg æfisaga skáldsins. Þá eru aðeins effir skýringar við
ritin, og munu þær koma út næsta haust. — Þetta rit þurfa allir bóka-
menn að eignast.
Virkir dagar (æfisaga Sæm. Sæmundssonar).
Bókin er færð i letur af GUÐM. HAGAÚN. Fáar bækur hata hlotið
betri dóma og engin á þessu ári. Um bókina hafa ritað: Séra Sig-
urður Einarsson, prófessor Magnús Jónsson, prófessor Guðbrandur
Jónsson, dr. Dorkell Jóhannesson o. fl., og allir lokið á hana lofsorði.
Ilmur daganna (eftir Guðm. Daníelsson).
/ fyrra kom út bókin Bræðurnir I Grashaga. Sú bók hlaut ágæta dóma
og náði miklum vinsældum. Ilmur daganna er framhald þeirrar bókar.
Góðar gjafir við öll tækifæri eru bækur. Munið eftir þessum: ís-
lenzkir þjóðhættir, Ljóðasafn Guðm. Guðmundssonar, Ljóðaúrval
Jónasar Hallgrímssonar, Bjarna Thorarensen, Matth. Jochumsson-
ar, Hannes Finnsson biskup, Meistari Hálfdan, Ljóð E. H. Kvaran.
Happdrætti
Háskóla íslands
býður yður tækifæri til
vinnings um leið og
þér hlynnið að æðstu
menntastofnun þjóðar-
innar.