Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 13

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 13
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 121 ttllllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII allt að 100 m dýpi víða um N-íshafið og allt suður við Háloga- land í Noregi. Hér við land er hann mjög tíður, við V-, N- og A- ströndina, einkum á kóralbotni í fjörðum, þar sem dýpið er 10— 20 m, en annars á öllu dýpi niður á 50—60 faðma, og hefir jafn- vel fengizt á 120 og 200 m (í botnvörpu) í Héraðsflóa og á Horn- banka. Höfundur hefir séð 100 mm langa móður með egg undir hala. — Marþvarinn er etinn töluvert af fiskum, einkum þorski, og er, fullvaxinn, töluverður biti, mjög fínn matur, sem ekki gefur kampalampa neitt eftir, en mun reynast erfiður til veiða, vegna þess, hve úfnum botni hann heldur sig mest á (næst helzt með botnsköfu). 2. Hrossarækja (Crangon Allmani Kin.), D Hestereje, N Hesteræke(5. md.). Skjöldurinn slétt- ur og stóru fálmararnir eins langir og allt dýrið annars. Annað gang- limaparið örmjótt, liturinn grágrænn. Miðlungsrækja að stærð, 1 hér víðast 40—50 mm, sjaldan 60 og allt að 75 mm. Heimkynni hennar eru á grunn- sævi (30—150 m) í N-Atlanzhafi frá Hvítahafi til Eyrarsunds og Ermar- sunds. Hér við land er hún víst mjög algeng, einkum í hlýja sjónum á öllu dýpi frá 10—170 m og á sand- og leirbotni, bæði á fjörðum inni og úti á djúpmiðum. Höf. hefir séð hana víða og mæður með egg undir hala, í marz—júlí. Stundum finnst hún í fiskamögum, og hefir eflaust nokk- ura þýðingu sem fiskafæða. Sem mannamatur kvað hún ekki standa að baki öðrum rækjum, enda þótt hún sé lítið veidd. 3. Noregsrækja (Pontophilus 5. md. Hrossarækja (stækkuð. Úr Danm. Fauna). norvegicus M Sars) er nokkru minni en hin algenga hrossarækja, lengd allt að 65 mm, með stóra fálmara og smá-brodda í þverröðum á skildinum. Hún er djúpsævisdýr, sem lifir á 50—1200 m dýpi í Davissundi og Norðurhafi frá Spitsbergen til Skagerak. Hér hefir hún fundizt í Háfadjúpi, Héraðsflóa (ein móðir með egg undir hala, 14. maí, í tindaskötumaga) og á Reyðarfjarðarfláka.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.