Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 29

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 137 iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiimimmitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiimiimmimmniiiiiiimiiiiiiiii á jörðunni er um norðanvert tempraða beltið nyrðra og svo langt norður eftir heimskautabeltinu, sem samfelldur gróður nær. Eink- um er mýrlendið útbreitt þar sem eyjaloftslag er, úrkoma mikil, en uppgufun lítil. En allólíkar eru mýrar nágrannalandanna okk- ar mýrum. Þær eru oft vaxnar kjarri eða allálitlegum skógi, sem þar getur þrifizt sakir hlýrra lofslags. En að svo hafi verið áður hér á landi, sýna lurkarnir, sem í mónum finnast hvarvetna um land. Þeir eru sönnun þess, að þá hafi loftslag verið hlýrra hér á landi en nú er, því að nú firrist birkikjarrið mýrlendið, og það jafnvel í skógaauðugustu héruðum landsins, þar sem hvert holt, sem upp úr mýrunum rís, er kjarri klætt. Eins og þegar er getið, er jarðvegur mýranna að meira eða minna leyti fylltur vatni, stundum jafnvel svo að yfir flóir. Þetta hefir, sem nærri má geta, mikilvæg áhrif á eðli jarðvegsins, og um leið vöxt allra þeirra tegunda, er þarna vaxa. Þar sem jarðvatnið situr að mestu kyrrt allan ársins hring, og loftrás um jarðveginn er engin, verður hann oftast súr. En plöntunum er þannig háttað, að margar tegundir þrífast ekki nema við tiltekið sýrustig. Jarð- vegssúrinn getur þannig orðið til þess að ákveða hverjar tegundir vaxi í mýrlendinu eða einstökum deildum þess. Allir hlutar plöntu- líkamans þurfa að anda. Þegar jarðvegurinn er svo votur, að ræt- urnar ná engu lofti til sín, er þeim bætt það upp með loftæðum, sem kvíslast um allan líkama plöntunnar. Þessa einkennis gætir oft á mýraplöntum. Enn er þess að gæta, að rakinn í jarðveginum kælir hann mjög á sumrum. Sólarhitinn, sem mýrin nýtur, eyðist að allverulegum hluta til uppgufunar á jarðvatninu. Hinsvegar kólnar jarðvegur mýranna seinna en þurrlendisins, þegar nætur eru kaldar, og einkum eru mýrarnar oft öðrum gróðurlendum bet- ur varðar fyrir næðingum og frostum á vetrum. Þá liggja þær eða stór svæði þeirra þakin ísi og snjó, og jarðvegurinn sjálfur oft lítt eða ekki frosinn undir íshellunni, að minnsta kosti þegar alldjúpt vatn hefir legið yfir mýrinni yfir veturinn. Þessi hita- jöfnun ársins hefir djúptæk áhrif á allan gróður mýranna. Sumr- in eru þar svo köld, að hitakærustu plöntur landsins vaxa þar ekki, og einærar plöntur finnast þar naumlega. Á hinn bóginn vantar þar einnig kuldaþolnustu tegundarinnar. Þeirra er oft helzt að leita á móabörðum, þúfnakollum, melhólum og yfirleitt þar, sem vetrarnæðingarnir ná helzt að blása á nakinni jörðunni, og jarð- vegurinn gaddfrýs langt niður eftir. Um almennt vaxtarlag mýra- plantnanna skal tekið fram, að allur þorri þeirra er með vel þrosk-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.