Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1936, Page 39

Náttúrufræðingurinn - 1936, Page 39
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 147 iimmiiiiiiiiiiiiimimiiiiiimmiimiiimimimmmiiiimmiiiiiiiimiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiimiimiimiimmiimiiiiiiiiiiiiiiimiii Kúhegri (Ardeola ibis (L)). Seinni partinn í júní s. 1. barst mér bréf úr Vestmannaeyjum, með lýsingu á ókenndum fugli, sem þá var nýkominn þar á land. Grunaði mig þá, að hér væri um erlendan flæking að ræða, sem e. t. v. gæti hafa komizt hingað af sjálfsdáðum. En mér þótti það Kúhegri. (Eftir Heilm. og Mann.: Danmarks Fugleliv). þó fremur ólíklegt, vegna fjarlægðarinnar frá heimkynnum hans, því eg var þess full viss, að það hlaut að vera kúhegri, sem kom- inn var til eyjanna. Bæði var það, að bréfritarinn lýsti útliti fugls- ins nákvæmlega og hegðun hans benti einnig eindregið í þá átt, svo vart gat verið um aðra tegund að ræða. En ltúhegrinn á heim- kynni á sunnanverðum Spáni og Portúgal, í Norður-Afríku, t. d. Marocco, Alzír, Túnis, Egyptalandi, Suðvestur-Arabíu, í Gyðinga- landi og víðar. Af sjálfsdáðum hefir hann eitthvað þrisvar sinnum flækzt til Bretlandseyja og að minnsta kosti einu sinni til Dan- merkur. Það er sérkennilegt við hátterni þessa fugls, að hann hænist mjög að nautgripum þar sem þeir eru á beit og situr oft á bakinu 10*

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.