Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 4

Náttúrufræðingurinn - 1942, Side 4
1G2 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN hafa því 13 nýjar fuglategundir náðst hér á landi. Af hinum fugl- unum, sem getið er um hér á eftir, hafa sumir aðeins sézt hér einu sinni eða örsjaldan áður, en aðrir oftar, og enn aðrir sjást hér árlega. Sumum kann ef lil vill að finnast, að óþarft sé að geta jafn- itarlega um stara, gráþresti, svartþresti og vepjur og ef til vill fleiri tegundir vegna þess, hve algengar þær séu liér í flestmn árum. Að mínu áliti eru þó ítarlegar liþplýsingar um slíka fugla engu minna virði en upplýsingar um hina sjaldgæfari flækinga. Einungis með slikri skýrslusöfnun er liægl að afla nokkurn veg- inn öruggra heimilda um það, hve mikil brögð raunverulega eru að hingaðkomu þeirra og hvar á landinu og á hvaða tíma árs þeirra verður lielzt vart. Þegar slíkum skýrslum hefir verið safn- að um nokkurt árahil, skapast fjTrst aðstaða til þess að dæma um það, hvernig standi á hingaðlcomu þessara tegunda og livaðan þær komi. Ég vil taka það skýrt fram, að skýrsla þessi byggist eins og Fuglanýjungar I eingöngu á athugunum og upplýsingum, sem ég tel óvefengjanlegar. Nokkru af upplýsingum og Jýsingum á fuglum, sem hafa ekki verið nógu greinilegar til þess, að hægt væri að skera úr því með fullri vissu, um hvaða tegund hafi verið að ræða, hefi ég því að sjálfsögðu orðið að sleppa. Af öllum nýj- um fuglum eru auk þess til hamir eða aðrar leifar af þeim sem sönnunargögn. I skýrslunni er heimildarmanna alls staðar getið í svigum aftan við ujjplýsingar ]iær, er þeir hafa gefið. Eins og í Fuglanýjungum I eru allítarlegar lýsingar á útliti og lifnaðar- háttum nýrra fugla, sem ekki liefir verið getið áður á íslenzku, og auk þess fvlgir lýsingunni mynd af hverri þessara tegunda fyrir sig. Lýsingar ])essar her að skoða sem nokkurs konar viðbót við fuglabók Dr. Bjarna Sæmundssonar, ])ví að með hjálp þeirra á að vera hægt að ákvarða þær tegundir, sem höfðu ekki sézt hér á landi, þegar sú bók kom út, en hafa fundizt hér síðan. Að endingu vil ég leyfa mér að flytja þakkir mínar öllum þeim, sem hafa lagt skerf til fuglarannsóknanna síðastliðin tvö ár eða á einhvern hátt hafa sluðlað að þvi, að skýrsla þessi gæti orðið sem fuljkomnust. 1. Kráka — Corvus corone cornix L. Þann 31. marz 1940 hélt kráka sig á túnunum við Tungu hjá Reykjavík. Daginn áður höfðu sézl 3 krákur á söinu slóðiun (F.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.