Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 11

Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 11
XÁTT ÚR UFR/lvÐ INGURIXX 109 um, en allhaganléga fóðrað innan með fíngerðari stráum og eigi ósjaldan með liárum ýmissa dýra. Varptíminn byrjar um miðjan apríl, sums slaðar þó ekki fyrr en í byrjun mai. Sönglævirkinn verpur tvisvar og að sögn stundum jafnvel þrisvar á sumri. Eggin eru 3—5 og afar breytileg að lit, venjulega þó með þéttum dökk- gráum eða brúnum dílum og dropurn á rjómalitum, grá- eða hvít- leitum grunni. Dílarnir ofl mjög þéttir og hálfsamanrunnir i kringum digra enda eggsins. Kvenfuglinn annast alltaf eða oftast útungunina einn. Útungunartíminn eru 14 dagar, stundum þó ekki nema 11—12 dagar. Ungarnir yfirgefa hreiðrið eftir 9- 10 daga, en verða ekki flevgir fyrr en 10 dögum síðar. Bæði hjónin mata unganá. Fæðan eru alls konar fræ og korntegundir og fleira úr jurtaríkinu og svo skordýr og lirfur þeirra, margfætlur, köngu- lær og sníglar. Jurtafæðunnar er einkum neytt á haustin og vet- urna, en fæðu úr dýrarikinu á sumrin. Á þýzku er sönglævirkinn kallaður Feldlerche, á enslcu Sky- Lark, á dönsku Lærke eða Sanglærke, á norsku Lerke og á sænsku Sánglárka. 10. Silkitoppa — Bombvcilla garrulus garrulus (L.). Veturinn 1941—1942 Ijar allmikið á silkitoppum hér á landi. Fór fvrst að verða vart við þær í október 1941, og varð þeirra síðan öðru hverju vart á ýmsum stöðum á landinu fram í febrúar 1942. í Reykjavík varð silkitoppuimar fyrst vart 10. nóv. Þá náðist ein lifandi af ketti á Grímsstaðaboltinu. Daginn eftir sáust 3 silkitoppur í Alþingishúsgarðinum, og 14. nóv. voru taldar 15 silkitoppur í sama garði. Fftir það sáust silkitoppur öðru hverju í görðum víða um bæinn, ýmist fáar saman eða í smáhópum. Virtust þær meslmegnis lifa á reyniberjum og létu greipar sópa um garða, þar sem reynitré voru. Þegar leið á desembermánuð, lór þeim að fækka, í janúar varð þeirra þó enn allviða varl í bænum, en i febrúar lnirfu þær síðustu. Á Svanshóli i Stranda- sýslu sást silkitoppa 24. nóv., en livarf aftur sama dag (Ingim. Ingimundarson). Á Akurevri sást hópur af silkitoppum milli jóla og nýárs i garði .Takobs Karlssonar, Lundi við Akureyri. Þann 31. des. sást 1 silkitoppa i garði í innbænum á Akureyri, og í jan- úar sáust nokkrum sinnum silkitoppur í Gróðrarstöðinni á Akur- eyri, í eilt skipli um 30 saman. Heimildarm. minn að þessum uppl. um silkitoppurnar á Akureyri er Kristj. Geirmundss. Samkv. frá- sögn hans sást einnig silkitoppa á Litla-Hóli i Fyjafirði milli jóla

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.