Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 24
182
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
veturinn 1938. Álítur hann, að sá fugl verði að teljast til evrópsku
undirtegundarinnar, Podiceps griseigena griseigena (Bodd.),
en stóru sefendur, sem náðst hafa áður hér á landi, liafa allar tal-
izt til amerísku undirtegundarinnar, Podiceps griseigena holboellii
Reinli. Ég hefi fengið þennan fugl til athugunar og get ekki betur
séð en hér sé einnig um amerísku undirtegundina að ræða. Að
minnsta kosti bendir stærðin (vængur 192, nef 44.3 og rist 59
mm) ótvírætt í þá átt, einkum vænglengdin. Um þennan fugl liafði
ég ekki hcldur fengið vitneskju, þegar Fuglanýjungar I komu út.
27. Hringdúfa — Columba palumbus palumbus L.
Sumarið 1940 sást öðru hverju hringdúfa i gróðrarstöðinni og
í kornökrum Ræktunarfélagsins á Aluireyri, og seinni hluta sum-
ars 1941 sást enn hringdúfa i kornökrum Ræktunarfélagsins
(Kristján Geirmundsson).
28. Stóri spói — Numenius arquata arquata (L.).
Uin mánaðamótin apríl og mai 1940 héldu f jórir stóru spóar til
í nokkra daga á Sandi i Aðaldal. Fylgdust þeir alltaf að, en hurfu
svo með öllu (Njáll Friðbjörnsson).
29. Skógarsnípa — Scolopax rusticola L.
Þann 16. nóv. 1941 sáust 2 skógarsnípur á Kvískerjum i Öræf-
um (Hálfdán Björnsson), og þann 30. des. 1941 sást skógarsnípa
í Ilánni í Vestmannaeyjum (Þorsteinn Einarsson).
30. Dílastelkur — Tringa solitaria solitaria Wilson.
Þessi ameríska stelktegund var skotin í Laugarliolti í Andaldls-
hreppi í Borgarfirði þann 2. ágúst 1940. Björn Blöndal, bóndi í
Laugarliolti, sendi Náttúrugripasafninu fuglinn, og er liann nú
geymdur þar. Er þetta í fyrsta skipti, sem þessarar tegundar verð-
ur vart hér á landi. Fuglinn var fullorðinn kvenfugl, og mál lians
í mm voru sem hér segir: heildarl. 245, vængur 138, stél 58, nef
31.5, rist 33.5, miðtá + kló 29.8 og kló 4.6.
Dílastelkurinn er talsvert minni en íslenzkur stelkur og allfrá-
brugðinn honum að lit. Karl- og kvenfuglar í sumarbúningi eru
að ofanverðu (ofan á höfði, aftan á liálsi og á baki) grágrænbrún-