Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 28

Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 28
XÁTTÚRUFRÆÐINGURINN • 18(5 eyjum, þess í bréfi til mín, að vepjur séu þar oft haust og vor. Ofanskráðar upplýsingar sýna greinilega, að vepjurnar eru liér allalgengir vetrargestir, sem fara fvrst að sjást i sept. og sjást síðast í maí. Mesl virðist þó hera á þeim í nóvember og marz. Sumarmánuðina júní, júlí og ágúst liafa aftur á móti engar vepj- ur sézt. 32. Þernumávur — Xema sabini (Sabine). Þann 13. ágúst 1941 sá Friðrik Sigurbjörnsson námsmaður í Reykjavik, sem þá var staddur á Bíldudal við Arnarfjörð, þernu- máv innan um kríur og aðra máva þar á höfninni. Sá hann fugl- inn bœði á sundi og flugi úr tillölulega lítilli fjarlægð og gat því vel greint séreinkenni lians. Hefir liann látið mér í té lýsingu á fuglinum, en samkvæmt henni er ekki um að villast, að um þessa tegund hefir verið að ræða. 33. Dvergmávur — Larus minutus Pall. Samkvæmt upplýsingum frá Kristjáni Geirmundssyni á Akur- eyri var ungur fugl þessarar tegundar skotinn á höfninni á Húsa- vik við Skjálfanda seinni hluta sumars 1941. 34. Ismávur — Pagophila eburnea (Phipps). I hyrjaðan janúar 1940 var skotinn ísmávur á Láganúpi i Kolls- vik (V.-Barð.). Ismávarnir höfðu verið tveir, en aðeins annar þeirra náðist. Skömmu áður hafði fundizt þar dauður ísmávur á liamrabrún sunnan við víkina (Kollsvík) í nálega 100 m hæð yfir sjó (Halldór og Einar T. Guðbjartssynir). Þann 7. apríl 1940 sást ungur ísmávur (alhvitur með svörtum dröfnum) við svonefnda Torfmýri í Vestmannaeyjum, þar sem rusli frá bænum er hent í sjóinn (Þorsteinn Einarsson). 35. Litli kjói — Stercorarius longicaudus Vieill. Ham af ungum fugli þessarar tegundar hefir Hálfdán Björns- son á Kvíslcerjum i Oræfum sent Náttúrugripasafninu. Hafði fuglinn verið skotinn á Kvískerjum þann 6. scplember 1941. 36. Engjasvín — Crex crex (L.). I bréfi frá Skarphéðni Gíslasvni, Vagnsstöðum i Suðursveit (A.-Skafl.), segir svo: „Þann 25. apríl 1941 sást alókunnugur

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.