Náttúrufræðingurinn - 1942, Blaðsíða 15
XÁTTUR U FR Æi) IN G U R! X X
173
hann þar í nolckurn líma, og í nóv. og fram í des. voru svartþrestir
þar nokkuð algengir (Sigurður og Hálfdián Björnssynir). Á Efri-
Steinsmýri í Meðallandi sást fjöldi af svartþröstum veturinn 1911
-—1942 (Bjarnfreð Ingimundarson), og í Berjanesi í Landeyjum
voru nokkrir svartþrestir um tíma í okt. (Guðjón Einarsson).
Til viðbótar þessum upplýsingum má gela þess, að Ólafur Sveins-
son, Lambavatni á Rauðasandi, segir í bréfi til mín, að svart-
þrestir sjáistþar á hverju ári,fugl og' fugl, og ennfremur segir Njáll
Friðbjörnsson, Sandi i Aðaldal, í bréfi lil min, að svartþrestir séu
þa r svo tíðir á vetrum, að hann sé bættur að dagsetja, þó að hann
verði þeirra var.
15. Gulbrystingur — Erithaeus rubecula (L.).
I Fuglanýjungum I var þess gelið, að gulbrystingur hefði sézt í
Vestmannaeyjum 1. des. 1939. Sá fugl sást þar enn 7. jan. og 4.
febrúar 1940 (Þorsteinn Einarsson). Samkvæmt upplýsingum frá
Iiálfdáni Björnssyni, Kvískerjum i Öræfum, sáust þar 2 gulbryst-
ingar 20. nóv. 1941. Þann 19. des. voru þeir þar enn um kyrrt, og
þann 30. jan. 1942 sást annar þeirra. Eins og bent var á í Fugla-
nýjungum I, er að svo komnu máli ekki liægt að segja með fullri
vissu, hverrar undirtegundar þeir gulbrystingar eru, sem náðst
liafa liér á landi.
10. Landsvala — Hirundo rustica rustica L.
Haustið 1940 flaug landsvala á símaþráð lijá Halldórsstöðum í
Bárðardal og beið bana af (Kári Tryggvason). Á Grímsstöðum við
Mývatn sást landsvala þann 23.—24. maí 1940 (Ragnar Sigfinns-
son). í Vestmannaeyjum varð vart við landsvölur þann 19. maí
1940, og daginn eftir fjölgaði þeim þar mjög (Þorsteinn Einars-
son). Árið 1941 sást landsvala á Grimsstöðum við Mývatn í tvo
daga um mánaðamótin mai og júní (Jóbannes Sigfinnsson), og á
Seljamýri í Loðmundarfirði liéll landsvala til í 3 daga um mánaða-
mótin apríl og maí (Þóroddur Guðmundsson).
17. Bæjasvala — Delichon urbica urbica (L.).
Árið 1940 varð á tveim stöðum vart við bæjasvölur bér á landi,
en árið 1911 liéfi ég engar fregnir af þeim haft. Þann 11. júni
1940 sáust 5—6 bæjasvölur á Kiðafelli i Kjós (Friðrik Sigurbjörns-