Náttúrufræðingurinn - 1942, Síða 7
NATTURU FR ÆÐING URINN
105
Árið 1941 varð enn á nokkrum stöðum vart við bókfinkur hér
á landi. Fullorðinn karlfugl sást í Alþingishúsgarðinum í Reykja-
vik 22. maí. Næstu daga á eftir sást hann í garði Hressingarskálans
og í fleiri görðum i miðbænum (F. Guðm.). I Neskaupstað í Norð-
firði var bókfinkupar um tíma um vorið, en hvarf snemma í maí
(Björn Björnsson). Á Kvískerjum í Öræfum sásl hókfinka 20.
apríl í garðinum við hæinn og dvaldist hún þar í nokkurn tíma.
Þann 18. okt. sást aftur bókfinka á Kvískerjum, og dvaldist hún
þar í nokkra daga. Það var kvenfugl. Þann 14. nóv. sást enn bók-
finka á Kvískerjum, og var það einnig lcvenfugl (sú sama og sást
18. okt.?) Dvaldizt liún fram i des. Loks sáust tvær hókfinkur
(karlfuglar ) á Fagurhólsmýri í Öræfum þann 24. apríl. Heimild-
armenn mínir að upplýsingunum um bókfinkurnar á Kvískerjum
og Fagurliólsmýri eru Sigurður og Hálfdán Björnssynir.
Ég hefi hér og eins í Fuglanýjungum I talið bókfinkur þær, sem
vart Jiefir orðið við hér á landi, til undirtegundar þeirrar, sem á
heima í Skandínavíu og víðast livar annars staðar á meginlandi
Evrópu. Eigi að síður gæti hugsazt, að Fringilla coelebs gengleri
Kleinschmidt slæðist hingað, en sú undirtegund á heima á Bret-
landseyjum. Úr því verður ekki skorið nema með ítarlegri rann-
sókn á hömum héðan.
7. Fjallafinka — Fringilla montifringilla L.
Þann 21. apríl 1941 sáust tvær fjallafinkur í garðinum við hæinn
á Kvískerjum í Öræfum (Sigurður Björnsson).
8. Lævirkjabróðir — Calandrella brachydactyla brachydactyla
(Leisler).
Þann 20. nóv. 1940 náðist óþekktur smáfugl af ketti í Vest-
mannaeyjum. Var hann með lífsmarki, en drapst skömmu síðar.
Þorsteinn Einarsson og Friðrik Jesson sendu Náttúrugripasafn-
inu fuglinn, og kom þá í ljós, að um þessa tegund var að ræða, en
hennar hefir aldrei áður orðið vart liér á landi. Kyn fuglsins var
ekki ákvarðað, en mál hans i mm. voru þessi: vængur 88.5, stél
57,0, nef 19.5, rist 18.3, miðtá + kló 14.4 og kló 5.0.
Lævirkjabróðirinn lelzl til lævirkjaættarinnar (Alaudidae). Að
vexti og lit svipar honum nokkuð til sönglævirlcjans, sem getið
verður hér næst á eftir, en lævirkjabróðirinn er þó minni. Stærð