Náttúrufræðingurinn - 1942, Page 9
NÁTT Ú R l: FR ÆÐINGURINN
1(57
vart í Sviss, Austurríki, Póllandi, Belgíu, Þýzkalandi (á Helgolandi
næstuni árlega) og eittlivað 24 sinnum á Bretlandseyjum.
Kjörlendi lævirkjabróðurins eru hrjóstrugar og sendnar auðnir
eða þurrt graslendi, gresjur með strjálum runnum, saltsteppur o.
s. frv. Hreiðrið er aðeius laut ofan í jarðveginn, hulin þistlum eða
grasi og fóði-uð losaralega að innan með visnuðu grasi, rótartægj-
um, Iiári og jurtaull. Yarptiminn stendur frá því um miðjan april
og fram i júní og júli, enda verpur lævirkjabróðirinn tvisvar á
sumri. Útungunartíminn eru 14 dagar. Eggin eru 3—5, stundum 6,
með ljósbrúnleitum eða öskugráum dropum, dilum eða rákum á
einhvern veginn brúngulleituin eða jafnvel bláleitum grunni. Fæð-
an eru alls konar fræ og fleira úr jurtaríkinu, en einnig skordýr,
t. d. bjöllur og tvívængjur.
A ensku er lævirkjabróðirinn kallaður Sliort-toed Lark og á
þýzku Kurzzehige Lerche eða Kurzzehenlerche.
9. Sönglævirki — Alauda arvensis arvensis L.
Hálfdán Björnsson, Kvískerjum í Öræfum, hefir sent Náttúru-
gripasafninu fugl þessarar tegundar. Hann náðist þar 15. des 1941.
Er það i fyrsta skipti, sem sönglævirkjans verður vart hér á landi.
Mál fuglsins i mm. voru þessi: vængur 111.0, stél 71.6, nef 12.3,
rist 24.6, miðtá + kló 20.2, kló 6.1, afturtá + kló 23.2, kl. 14.4.
Kvn fuglsins var ekki ákvarðað, en eftir stærðinni að dæma getur
varla leikið vafi á því, að þetla liafi verið karlfugl. Litur fuglsins
bendir auk þess á, að um ungan fugl bafi verið að ræða.
Sönglævirkinn telst til lævirkjaættarinnar eins og lævirkja-
bróðirinn. Stærð lians í mm. er sem liér segir: vængur 111—122 á
karlí'. og 99—-108 á kvenf., stél 71—76, rist 23—26, nef 12.5—14.5.
Á sönglævirkjanum er 1. handflugfjöður mjög litil, meira en helm-
ingi styttri en handþölcurnar, en sést ]ió greinilega að neðan. 3.
handflugfjöður er lengst, 2. og 4. stundum eins langar, en venju-
lega 1—2 mm. styttri. Innri armflugf jaðrirnar eru mjög langar, en
þó alltaf talsvert miklu styttri (oftast meira en 1 cm. styttri) en
lengstu handflugfjaðrirnar. Klóin á afturtánni er mjög löng, litið
hogin eða bein. Lengd klóarinnar getur þó verið mjög mismun-
andi, en alllaf er klóin þó lengri en afturtáin sjáll'. Að ofanverðu
er sönglævirkinn brúnn með brúnsvörtum langrákum, en að neð-
anverðu hvítleitur. Á uppbringu og síðum er hann þó ryðbleikur
með brúnsvörtum dilum á uppbringúnni og eins litum langrákum
á síðunum. Á framanverðum bálsi eru litlir dökkbrúnir dílar. Stutt