Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 3

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 3
Thorolv Rasmussen: Er íslenzka Norðurlandssíldin söm norsku vorsíldinni Árni FriSriksson íslenzkaði Höfundur ritgerðar þeirrar, er hér fer á eftir, er norski fiskifræðingurinn Thorolv Rasmussen, en hann hefur nú fcngizt við rannsóknir á síld í samfleytt 38 ár. Einkum hefur hann lagt stund á aldursákvarðanir á síld, eftir hreistrinu, og hefur hann kostað mjög kapps um að lesa uppruna síldarinnar og æviferil hennar út úr hringunum í hreistrinu. Má óhætt fullyrða, að í þessari grein sé hann einn af allra færustu rnönn- um, sem nú eru uppi. Eftir að Fiskideildin var stofnuð, voru lögð drög að sem nánastri samvinnu við Norðmcnn um sildarrannsóknir. Hefur sú samvinna verið liin prýðilegasta, enda höfum við jafnan átt góðan hauk í horni, þar senr Rasmussen er. Einn mikilvægasti þáttur samvinnunnar hefur verið samræming norskra og íslenzkra rannsóknaraðferða, og höfum við þar mjög lagað okkur eftir Norðmönnum, þar senr þeirra sfldarrann- sóknir eru grónar og gamlar, en okkar enn ungar að árum. Liður í þessu samstarfi var heimsókn Rasmussens hingað og dvöl hans á Siglufirði sumarið 1918. Ritgerð þessa lief ég þýtt nreð leyfi höfundar, en hún á að birtast innan skamms í Annales Biologiques, sem er eitt af málgögnum Alþjóða-hafrannsóknanna. Staddur á Siglufirði, 22. júlí 1948 Arni FriÖriksson. Norska vetrarsíldin grípur yfir bæði stórsíldina og vorsíldina. Stórsíldin gengur fyrst upp að ströndinni, fer að ganga í janúar. Hún tekur land á svæðinu frá Sogni og Fjörðunum að sunnan allt til Þrændalaga að norðan. Er hún þá full af lirogmim og sviljum. Vorsíldin myndar aðalgotstofninn. Hún gengur vanalega upp að SV-ströndinni, einkum á svæðinu norðan frá Bömmeleyju suður að Egersundi. Vorsíldarveiði Norðmanna fer fram í febrúar — marz. Síldin er þá að hrygna. Aðalgöngurnar virðast koma upp að ströndinni kringum eyna Utsira, enda hefst veiðin þar venjulega. 10

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.