Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 6
148
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Gerð hreistursins (Skjellkarakteren). Ef við berum sarnan gerð
hreistursins áf norsku síldinni og Norðurlandssíldinni, finnum við
þar mikið svipmót, bæði um vöxtinn (fjarlægðina á rnilii vetrar-
hringanna) sem og um útlit vetrarhringanna. Eftir gerð hreistursins
á norsku síldinni getum við skipt henni í norðlægt og suðlægt af-
Itrigði, en bæði þessi afbrigði finnum við einnig í Norðurlands-
síldinni. Um það viljum við ræða nánar síðar.
Árgangarnir í sildarstofninum. Árangur fyrri rannsókna virtist
ekki benda til þess, að mjög náið samræmi væri um árgangaskipun
í stofnunum, enda þótt svo kynni að virðast sum árin.
Á L mynd er sýnd aidursdreifing vorgotssíldar, sem veiddist við
Noreg, ísland, Jan Mayen og í Grænlandshafi. Myndin sýnir, að
um mikinn mismun er að ræða, ef við berum saman norsku og
íslenzku síldina. í íslenzku síldinni ber mest á árganginum frá 1918
á árabilinu f'rá 1929 til 1933. Árið 1935 er árgangur þessi orðinn 17
vetra og er þá að fjara út. Á sarna árabili er árgangur þessi reyndar
einnig sterkur í norsku síldinni, en liann er þegar kominn á fallandi
fót 1929, og verða yngri árgangar honum þá yfirsterkari. í íslenzku
síldinni ber mest á gömlum fiski, en í hinni norsku er yngri fiskur
yfirgnæfandi einmitt sömu árin.
í báðum sýnishornunum frá Jan Mayen, en þau eru frá árunum
1930 og 1931, gætir nokkurs samræmis við norska stofninn, þegar
um yngri liskinn er að ræða, en sýnisliornið úr Grænlandshafi
bendir frekar á samræmi milli síldarinnar þar og íslenzku síldar-
innar.
í riti sínu um íslenzku síldina 1936 kemst Sven Runnström
m. a. svo að orði:* ** „Samt virðist vera munur á aldri fullorðnu síld-
arinnar 1 stofnunum, og hann er þannig, að íslenzka síldin er yfir-
leitt eldri og árgangarnir endast lengur í aflanum, en þegar um
norsku síldina er að ræða.“##
Með rannsókn á ýmsum líffæralegum sérkennum komst A. C.
Johansen (1919, 1926) að þeirri niðurstöðu, að norska og íslenzka
síldin séu mjög skyldar, og lagði hann til, að báðir stofnarnir yrðu
* Sven Runnström: Investigations on Icelandic Herring in 1929—1935. Rapp. et
Proc.-Verb. Vol. XCIX, 1936.
** „There seems, however, to be a difference in regard to the recruiting of the shoals
of adult fish from those of the young herrings, viz. that the Icelandic herrings
appear in the shoals of adult herrings at an older stage and thereforc also decimatc
Jater than is the case with Norwegian herrings,"