Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 20

Náttúrufræðingurinn - 1948, Síða 20
162 NÁTTÍJRUFRÆÐINGURINN gerðis. Þar eru hæstu hríslur um 2 m á hæð. Undirgróður er aðal- lega bláberja- og aðalbláberjalyng, hrútaberjalyng, blágresi, bugðu- puntur, reyr og reyrgresi. Loðvíðiblettir eru sums staðar og beili- lyng í jöðrum. í Hólagerði vex kjarr og loðvíðir alveg lieirn að túni. Þar var mér sagt frá þyrni, sem jrar lielði lengi vaxið. Reyndist hann vera þyrni- rós (Rosa pimpinellifolia). Rósin er lágvaxin og hefur ekki blómgazt, svo að kunnugt sé. Vex hún í túnjaðrinum á hæðarhrygg innan um gras, bláberjalyng, loðvíði og birkikjarr. Hryggurinn með rósinni nær alllangt upp fyrir túnið. Heitir þar í Hrossadal. Austanlands hefur rósin áður fundizt á Kollaleiru við Reyðarfjörð og á Skeggja- stöðum á Fljótsdalshéraði. Hrossadalur nær upp að fjalli. Hann er grunnur með hamra fjallsmegin. Á dalnum er kjarngott land, og mun þar sums staðar all- snjóþungt á vetrum. Þar er lágt birkikjarr, loðvíðibreiður og mikið af berjalyngi, lilágresi og geithvönn. í klettunum vaxa sigurskúfur, liðfætla, klettafrú (og sennilega bergsteinbrjótur). 1 bergrifum var nrikið af einkennilegum röndóttum köngulóm, sem sátu í sterkum vef eða skriðu í berginu. Þær eru stórar, framfótalangar, þverrönd- óttar, einknm á fótum, svartar og grágular með málmgljáa'. Á baki eru þverrákir og dílar. Seinna sá ég þessar ,,tígurlær“ víða í kjarri í Fáskrúðsfirði. Hef aðeins séð eina slíka könguló áður, og var það austur á Síðu árið 1939. Fjöllin við Fáskrúðsfjörð eru brött og skriðurunnin hið efra. Hallast hamrabeltin talsvert inn eftir. Við innanverðan fjörðinn ern fjöllin nijög sundurrifin með hvðssum tindum og kömbum. Skaflar lágu þar sums staðar. Hátt í Gestsstaðafjalli sá ég lotsveifgras (Poa Jaxa, flexuosa), snœnarfagras (Phippsia algida), dvergs'.ör (Carex glacialis), fjallliæru (Luzula arcuata) og jöklasóley (Ranunculus glacialis). í Tungunesi inn af firðinum eru allmiklar engjar. Þar vex marstör (Carex salina var. kattegatensis), skriðdepla (Veronica scutellata) og enn fremur flceðastör (Carex subspathacea) í efjunni við fjarðarbotninn. í kaupstaðnum á Búðum eru nokkrir trjágarðar. í garði Björg- vins Þorsteinssonar eru t. d. reynir, silfurreynir og barrfellir 19 ára gamlir og 7 m á hæð. Hjá Hirti Pálssyni er einnig 7 m hár reynir. í garði Marteins kaupmanns eru lagleg birkitré, reynir, þingvíðir, gulvíðir og ribs. Við Sunnuhvol eru 4 reynitré 7—8 m há. Auk þess

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.